„Einar Benediktsson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
|||
(33 millibreytinga eftir 24 notendur ekki sýndar) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
{{aðgreiningartengill1|Einar Benediktsson|[[Einar Benediktsson (sendiherra)|Einar Benediktsson, sendiherra]]}} |
{{aðgreiningartengill1|Einar Benediktsson|[[Einar Benediktsson (sendiherra)|Einar Benediktsson, sendiherra]]}} |
||
[[File:Einar Benediktsson statue.jpg|thumb| Stytta af Einari Benediktssyni eftir Ásmund Sveinsson stendur við Höfða í Reykjavík, en Einar bjó í húsinu um árabil.]] |
|||
'''Einar Benediktsson''' ([[31. október]] [[1864]] – [[21. janúar]] [[1940]]), oft kallaður '''Einar Ben''', var [[skáld]], ritstjóri, [[lögfræðingur]], embættis- og athafnamaður. Einar hefur oft verið nefndur [[athafnaskáld]] og talinn í hópi [[nýrómantík|nýrómantískra]] skálda. [[Málsháttur]]inn „''Aðgát skal höfð í nærveru sálar''” er hafður eftir Einari, og kemur úr ljóðinu ‚Einræður Starkaðar, III‘. |
|||
'''Einar Benediktsson''' (oft nefndur '''Einar Ben''') (31. október 1864 – 12. janúar 1940)<ref>{{cite web|url=http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=78381&pageId=1149785&lang=is&q=EINAR%20BENEDIKTSSON%20Einar%20Benediktsson|title=Einar Benediktsson|last=|first=|date=27. janúar 1940|website=|publisher=[[Vísir (dagblað)|Vísir]]|archive-url=|archive-date=|access-date=}}</ref><ref>{{cite web|url=http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=62157&pageId=1053394&lang=is&q=Einar%20Benediktsson%20BENEDIKTSSON|title=Einar skáld Benediktsson lézt s.l. föstudagskvöld|last=|first=|date=15. janúar 1940|website=|publisher=Alþýðublaðið|archive-url=|archive-date=|access-date=}}</ref> var [[skáld]], ritstjóri, [[lögfræðingur]], embættis- og mikill athafnamaður. Einar er talinn í hópi [[nýrómantík|nýrómantískra]] skálda og samdi mikil ljóð með hátimbruðu yfirbragði. Orðin: „''Aðgát skal höfð í nærveru sálar''“ eru úr ljóði hans ''Einræður Starkaðar, III''. |
|||
==Ævi og ferill== |
== Ævi og ferill == |
||
Faðir Einars var [[Benedikt Sveinsson]], [[alþingi]]smaður og sýslumaður og móðir hans hét Katrín Einarsdóttir, húsmóðir. Einar gekk í [[Menntaskólinn í Reykjavík|Lærða Skólann]] í [[Reykjavík]] þaðan sem hann varð stúdent |
Faðir Einars var [[Benedikt Sveinsson (sýslumaður)|Benedikt Sveinsson]], [[alþingi]]smaður og sýslumaður og móðir hans hét Katrín Einarsdóttir, húsmóðir. Einar gekk í [[Menntaskólinn í Reykjavík|Lærða Skólann]] í [[Reykjavík]] þaðan sem hann varð stúdent 1884. Hann fór því næst til [[Kaupmannahöfn|Kaupmannahafnar]] og útskrifaðist sem lögfræðingur úr Hafnarháskóla 1892. |
||
Einar stofnaði fyrsta [[dagblað]] Íslands, ''[[Dagskrá]]'', árið |
Einar stofnaði fyrsta [[dagblað]] Íslands, ''[[Dagskrá]]'', árið 1896, sem studdi [[Heimastjórnarflokkurinn|Heimastjórnarflokkinn]], og var sjálfur ritstjóri þess í tvö ár. Hann átti þátt í stofnun [[Landvarnarflokkurinn|Landvarnarflokksins]] árið 1902 og gaf út blaðið ''[[Landvörn]]'' samhliða því. Einar átti þátt í því að koma á laggirnar fyrstu [[loftskeyti|loftskeytastöð]] landsins árið 1905. Hann kom einnig að útgáfu blaðanna ''[[Þjóðin]]'' (1914–15), ''[[Þjóðstefna]]'' (1916–17) og ''[[Höfuðstaðurinn]]'' (1916–17). |
||
Einar var mikill áhugamaður um [[Vatnsaflsvirkjun|virkjun fallvatna]] og stofnaði ásamt öðrum [[Fossafélagið Títan]] 1914 til athugunar á því hvort arðbært væri að byggja virkjanir við [[Þjórsá]]. Ekkert varð úr þeim fyrirætlunum fyrr en um hálfri öld seinna þegar [[Búrfellsvirkjun]] var byggð. |
Einar var mikill áhugamaður um [[Vatnsaflsvirkjun|virkjun fallvatna]] og stofnaði ásamt öðrum [[Fossafélagið Títan]] 1914 til athugunar á því hvort arðbært væri að byggja virkjanir við [[Þjórsá]]. Ekkert varð úr þeim fyrirætlunum fyrr en um hálfri öld seinna þegar [[Búrfellsvirkjun]] var byggð. |
||
Á árunum |
Á árunum 1907–21 ferðaðist Einar mikið. Hann fór til [[Noregur|Noregs]], [[Edinborg]]ar í [[Skotland]]i, sneri aftur til Kaupmannahafnar (1908-10) en eyddi svo sjö árum í London (1910–17) áður en hann fór enn aftur til Kaupmannahafnar (1917–21), þess í milli hafði hann stuttar viðkomur á Íslandi. |
||
Hann sneri endanlega aftur heim til Íslands 1921 og bjó í Reykjavík næstu árin, þó svo að hann hafi oft verið langdvölum erlendis, |
Hann sneri endanlega aftur heim til Íslands 1921 og bjó í Reykjavík næstu árin, þó svo að hann hafi oft verið langdvölum erlendis, meðal annars í Þýskalandi, á Spáni og í Norður-Afríku. Þá lét hann fara fram rannsóknir á námum í [[Miðdalur|Miðdal]], til þess að skoða möguleikana á málmvinnslu og sementsframleiðslu. Síðustu átta árum ævi sinnar eyddi Einar í [[Herdísarvík]] á [[Reykjanesskagi|Reykjanesskaga]]. |
||
Einar lést í Herdísarvík 1940 og var grafinn í [[Þjóðargrafreitur|þjóðargrafreit]] á [[Þingvellir|Þingvöllum]]. Þegar hann lést var enginn vegur í Herdísarvík og þurfti að bera kistuna þangað úr [[Selvogur|Selvogi]]. Var hún þung, smíðuð úr eik og hafði verið smíðuð fyrir hann nokkru áður. Var Einar svo borinn í kistunni til baka í Selvog um 14 km.<ref>{{Cite web|url=https://www.visir.is/k/clp27425|title=Kynngimögnuð sveit í bakgarði Reykjavíkur - Vísir|website=visir.is|language=is|access-date=2022-11-25}}</ref> |
|||
== Eitt og annað == |
== Eitt og annað == |
||
* Stytta af Einari eftir Ásmund Sveinsson stendur |
* Stytta af Einari eftir Ásmund Sveinsson stendur við [[Höfði|Höfða]] í Reykjavík, en Einar bjó í húsinu um árabil. |
||
* Við Héðinshöfða á [[Tjörnes|Tjörnesi]] er minnisvarði um Einar, sem reistur var árið 1972. Þar var heimili Einars frá 1876 og fram á fullorðinsár, en faðir hans, Benedikt Sveinsson, gegndi starfi sýslumanns í [[Þingeyjarsýslur|Þingeyjarsýslum]] frá 1874 til 1897.<ref>{{Cite web|url=https://timarit.is/page/3727449|title=Minnisvarði Einars Benediktssonar að Héðinshöfða|last=|first=ÞJ|date=5.10.1972|website=timarit.is|publisher=Tíminn 226. tölublað|language=is|access-date=2023-04-01}}</ref> |
|||
* Veitingastaðurinn ''Einar Ben'' við [[Ingólfstorg]] er nefndur eftir Einari. |
|||
* Einar var um skamma hríð eigandi jarðarinnar [[Þorvaldseyri|Þorvaldseyrar]] en seldi hana fyrir 9 þúsund krónur sem talið var metfé fyrir bújörð. |
|||
* [[Guðjón Friðriksson]], sagnfræðingur, gaf út ævisögu Einars í þremur bindum á árunum |
* [[Guðjón Friðriksson]], sagnfræðingur, gaf út ævisögu Einars í þremur bindum á árunum 1997–2000. |
||
==Helstu verk== |
== Helstu verk == |
||
* ''Sögur og kvæði'' (1897) |
* ''Sögur og kvæði'' (1897) |
||
* ''Pétur Gautur'' (1901) (Þýðing á leikriti [[Henrik Ibsen]]) |
* ''Pétur Gautur'' (1901) (Þýðing á leikriti [[Henrik Ibsen]]) |
||
Lína 26: | Lína 30: | ||
* ''Hvammar'' (1930) (Kvæði) |
* ''Hvammar'' (1930) (Kvæði) |
||
==Heimildir== |
== Heimildir == |
||
*[http://www.hi.is/~gylfason/ofurhug.htm Ofurhuginn] |
* [http://www.hi.is/~gylfason/ofurhug.htm Ofurhuginn] |
||
*[http://www.hi.is/~eggthor/einarben.htm Ofurhuginn Einar Benediktsson] |
* [http://www.hi.is/~eggthor/einarben.htm Ofurhuginn Einar Benediktsson] {{Webarchive|url=https://web.archive.org/web/20070311073251/http://www.hi.is/~eggthor/einarben.htm |date=2007-03-11 }} |
||
== Tenglar == |
== Tenglar == |
||
{{Wikiheimild|Höfundur:Einar Benediktsson|Einari Benediktssyni}} |
{{Wikiheimild|Höfundur:Einar Benediktsson|Einari Benediktssyni}} |
||
* [http://www.timarit.is/?issueID=419066&pageSelected=0&lang=0 ''Einar Benediktsson''; greinar í Lesbók Morgunblaðsins 1964] |
* [http://www.timarit.is/?issueID=419066&pageSelected=0&lang=0 ''Einar Benediktsson''; greinar í Lesbók Morgunblaðsins 1964] |
||
* [http://www.timarit.is/ |
* [http://www.timarit.is/?issueID=419620&pageSelected=8&lang=0 ''Hjá Einari Benediktssyni í Herdísarvík''; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1971] |
||
* [http://www.timarit.is/?issueID=417253&pageSelected=16&lang=0 ''Kvæðin hans eru engum torskilin, sem hlusta vilja á hann''; viðtal við Valgerði Benediktsson; birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1941] |
* [http://www.timarit.is/?issueID=417253&pageSelected=16&lang=0 ''Kvæðin hans eru engum torskilin, sem hlusta vilja á hann''; viðtal við Valgerði Benediktsson; birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1941] |
||
* [http://www.timarit.is/?issueID=416853&pageSelected=3&lang=0 ''Um Katrínu Einarsdóttur |
* [http://www.timarit.is/?issueID=416853&pageSelected=3&lang=0 ''Um Katrínu Einarsdóttur – móður Einars skálds Benediktssonar''; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1938] |
||
* [http://www.timarit.is/ |
* [http://www.timarit.is/?issueID=416228&pageSelected=3&lang=0 ''Davíð konungur''; birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1929] |
||
* [http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2195843 ''Hvammar''; birtist í Lögbergi 1928] Grein í Morgunblaðinu 5. nóvember 2006: " Um afann Einar " eftir Einar Benediktsson fv. sendiherra |
* [http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2195843 ''Hvammar''; birtist í Lögbergi 1928] |
||
* Grein í Morgunblaðinu 5. nóvember 2006: " Um afann Einar " eftir Einar Benediktsson fv. sendiherra |
|||
* [https://timarit.is/page/6270471?iabr=on#page/n12/mode/1up/search/%22Gr%C3%ADmur%20Thomsen%22 Einar Benediktsson skáld.] Jónas Þorbergsson, Tímarit Máls og menningar 1. apríl 1940, bls. 7–16. |
|||
== Tilvísanir == |
|||
{{reflist}} |
|||
{{Stubbur|æviágrip}} |
{{Stubbur|æviágrip}} |
||
[[Flokkur:Íslensk skáld]] |
[[Flokkur:Íslensk skáld]] |
||
[[Flokkur:Íslendingar sem gengið hafa í Kaupmannahafnarháskóla]] |
|||
[[Flokkur:Stúdentar úr Menntaskólanum í Reykjavík]] |
|||
{{fd|1864|1940}} |
{{fd|1864|1940}} |
||
[[cs:Einar Benediktsson]] |
|||
[[de:Einar Benediktsson]] |
|||
[[en:Einar Benediktsson]] |
|||
[[eo:Einar Benediktsson]] |
|||
[[es:Einar Benediktsson]] |
|||
[[hu:Einar Benediktsson]] |
|||
[[pl:Einar Benediktsson (poeta)]] |
|||
[[pt:Einar Benediktsson]] |
|||
[[ro:Einar Benediktsson]] |
|||
[[sv:Einar Benediktsson]] |
|||
[[tr:Einar Benediktsson]] |
Nýjasta útgáfa síðan 30. desember 2023 kl. 11:54
Einar Benediktsson (oft nefndur Einar Ben) (31. október 1864 – 12. janúar 1940)[1][2] var skáld, ritstjóri, lögfræðingur, embættis- og mikill athafnamaður. Einar er talinn í hópi nýrómantískra skálda og samdi mikil ljóð með hátimbruðu yfirbragði. Orðin: „Aðgát skal höfð í nærveru sálar“ eru úr ljóði hans Einræður Starkaðar, III.
Ævi og ferill
[breyta | breyta frumkóða]Faðir Einars var Benedikt Sveinsson, alþingismaður og sýslumaður og móðir hans hét Katrín Einarsdóttir, húsmóðir. Einar gekk í Lærða Skólann í Reykjavík þaðan sem hann varð stúdent 1884. Hann fór því næst til Kaupmannahafnar og útskrifaðist sem lögfræðingur úr Hafnarháskóla 1892.
Einar stofnaði fyrsta dagblað Íslands, Dagskrá, árið 1896, sem studdi Heimastjórnarflokkinn, og var sjálfur ritstjóri þess í tvö ár. Hann átti þátt í stofnun Landvarnarflokksins árið 1902 og gaf út blaðið Landvörn samhliða því. Einar átti þátt í því að koma á laggirnar fyrstu loftskeytastöð landsins árið 1905. Hann kom einnig að útgáfu blaðanna Þjóðin (1914–15), Þjóðstefna (1916–17) og Höfuðstaðurinn (1916–17).
Einar var mikill áhugamaður um virkjun fallvatna og stofnaði ásamt öðrum Fossafélagið Títan 1914 til athugunar á því hvort arðbært væri að byggja virkjanir við Þjórsá. Ekkert varð úr þeim fyrirætlunum fyrr en um hálfri öld seinna þegar Búrfellsvirkjun var byggð.
Á árunum 1907–21 ferðaðist Einar mikið. Hann fór til Noregs, Edinborgar í Skotlandi, sneri aftur til Kaupmannahafnar (1908-10) en eyddi svo sjö árum í London (1910–17) áður en hann fór enn aftur til Kaupmannahafnar (1917–21), þess í milli hafði hann stuttar viðkomur á Íslandi.
Hann sneri endanlega aftur heim til Íslands 1921 og bjó í Reykjavík næstu árin, þó svo að hann hafi oft verið langdvölum erlendis, meðal annars í Þýskalandi, á Spáni og í Norður-Afríku. Þá lét hann fara fram rannsóknir á námum í Miðdal, til þess að skoða möguleikana á málmvinnslu og sementsframleiðslu. Síðustu átta árum ævi sinnar eyddi Einar í Herdísarvík á Reykjanesskaga.
Einar lést í Herdísarvík 1940 og var grafinn í þjóðargrafreit á Þingvöllum. Þegar hann lést var enginn vegur í Herdísarvík og þurfti að bera kistuna þangað úr Selvogi. Var hún þung, smíðuð úr eik og hafði verið smíðuð fyrir hann nokkru áður. Var Einar svo borinn í kistunni til baka í Selvog um 14 km.[3]
Eitt og annað
[breyta | breyta frumkóða]- Stytta af Einari eftir Ásmund Sveinsson stendur við Höfða í Reykjavík, en Einar bjó í húsinu um árabil.
- Við Héðinshöfða á Tjörnesi er minnisvarði um Einar, sem reistur var árið 1972. Þar var heimili Einars frá 1876 og fram á fullorðinsár, en faðir hans, Benedikt Sveinsson, gegndi starfi sýslumanns í Þingeyjarsýslum frá 1874 til 1897.[4]
- Einar var um skamma hríð eigandi jarðarinnar Þorvaldseyrar en seldi hana fyrir 9 þúsund krónur sem talið var metfé fyrir bújörð.
- Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, gaf út ævisögu Einars í þremur bindum á árunum 1997–2000.
Helstu verk
[breyta | breyta frumkóða]- Sögur og kvæði (1897)
- Pétur Gautur (1901) (Þýðing á leikriti Henrik Ibsen)
- Hafblik (1906) (Kvæði)
- Hrannir (1913) (Kvæði)
- Vogar (1921) (Kvæði)
- Hvammar (1930) (Kvæði)
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Ofurhuginn
- Ofurhuginn Einar Benediktsson Geymt 11 mars 2007 í Wayback Machine
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Einar Benediktsson; greinar í Lesbók Morgunblaðsins 1964
- Hjá Einari Benediktssyni í Herdísarvík; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1971
- Kvæðin hans eru engum torskilin, sem hlusta vilja á hann; viðtal við Valgerði Benediktsson; birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1941
- Um Katrínu Einarsdóttur – móður Einars skálds Benediktssonar; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1938
- Davíð konungur; birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1929
- Hvammar; birtist í Lögbergi 1928
- Grein í Morgunblaðinu 5. nóvember 2006: " Um afann Einar " eftir Einar Benediktsson fv. sendiherra
- Einar Benediktsson skáld. Jónas Þorbergsson, Tímarit Máls og menningar 1. apríl 1940, bls. 7–16.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Einar Benediktsson“. Vísir. 27. janúar 1940.
- ↑ „Einar skáld Benediktsson lézt s.l. föstudagskvöld“. Alþýðublaðið. 15. janúar 1940.
- ↑ „Kynngimögnuð sveit í bakgarði Reykjavíkur - Vísir“. visir.is. Sótt 25. nóvember 2022.
- ↑ „Minnisvarði Einars Benediktssonar að Héðinshöfða“. timarit.is. Tíminn 226. tölublað. 5.10.1972. Sótt 1. apríl 2023.