Kulusuk
Útlit
Kulusuk (á dönsku: Kap Dan) er byggðakjarni á samnefndri eyju í byggðarlaginu Sermersooq á Austur-Grænlandi. Íbúafjöldi er um 350. Á Kulusuk-eyju er einnig Kulusuk-flugvöllur sem er eini alþjóðlegi flugvöllurinn á Austur-Grænlandi. Yfir sumartímann flýgur Flugfélag Íslands til Kúlúsúk frá Reykjavík. Reglulegt áætlunarflug á vegum Air Greenland er allt árið um kring frá Nuuk og Kangerlussuaq. Frá flugvellinum er um 10 mínútna flug með þyrlu til Tasiilaq. Frá 1959 til 1991 var rekin bandarísk ratsjárstöð í Kulusuk.
Grænlenska nafnið Kulusuk þýðir 'bringa teistunnar'.