[go: nahoru, domu]

Fara í innihald

Æðarkóngur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 1. nóvember 2009 kl. 04:22 eftir LaaknorBot (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. nóvember 2009 kl. 04:22 eftir LaaknorBot (spjall | framlög) (robot Bæti við: kl:Miteq sujorakitsoq)
Æðarkóngur
Æðakóngur (til vinstri) og æðarfugl (til hægri)
Æðakóngur (til vinstri) og æðarfugl (til hægri)
Ástand stofns
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríki (Animalia)
Fylking: Seildýr (Chordata)
Flokkur: Fuglar (Aves)
Ættbálkur: Gásfuglar (Anseriformes)
Ætt: Andaætt (Anatidae)
Ættkvísl: Æðarfuglar (Somateria)
Tegund:
S. spectabilis

Tvínefni
Somateria spectabilis
(Linnaeus, 1758)

Æðarkóngur (fræðiheiti: Somateria spectabilis) er stór sjóönd sem verpir á norðurhveli jarðar á Norðurslóðum við strandir norðaustur Evrópu, Norður Ameríku og Asíu. Hreiður æðakóngs er fóðrað með dúni en það er á túndru nálægt sjó. Kollan verpir 4 til 6 eggjum. Æðarkóngur fer á veturna suður á bóginn til Noregs og austurhluta Kanada þar sem fuglarnir safnast saman í stóra hópa við sjávarsíðuna. Æðarkóngur lifir á kræklingum og lindýrum úr sjó.

Æðarkóngur er minni en æðarfugl og er auðþekktur á því að blikinn er svartur með hvíta bringu og marglitt höfuð. Kollan, æðardrottning, er brún á lit.

Heimildir

Tenglar