[go: nahoru, domu]

Fara í innihald

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 11. maí 2010 kl. 09:33 eftir Alexbot (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. maí 2010 kl. 09:33 eftir Alexbot (spjall | framlög) (robot Bæti við: tt:БМО Иминлек Шурасы)
Fundarsalur öryggisráðsins í höfuðstöðvum S.þ.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er ein af stofnunum Sameinuðu þjóðanna og hefur það hlutverk að viðhalda friði og öryggi á meðal þjóða. Stofnunin er sú eina innan S.þ. sem hefur völd til þess að taka ákvarðanir sem eru bindandi fyrir aðildarríki S.þ. samkvæmt sáttmála þeirra, ákvarðanir þess nefnast ályktanir. Meðlimir ráðsins eru 15, þar af eru 5 með fast sæti en 10 sem kosnir eru af allsherjarþinginu til tveggja ára í senn. Föstu meðlimirnir eru Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kína og Rússland. Föstu meðlimirnir fara einnig með neitunarvald gagnvart öllum efnislegum ályktunum ráðsins (en ekki fundarsköpum). Forsæti í ráðinu færist á milli meðlima í hverjum mánuði.

Tenglar