13. apríl
Útlit
Mar – Apríl – Maí | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | ||||
2024 Allir dagar |
13. apríl er 103. dagur ársins (104. á hlaupári) samkvæmt gregoríanska tímatalinu. 262 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
- 1203 - Guðmundur Arason var vígður Hólabiskup, 43 ára.
- 1204 - Krossfarar réðust á Konstantínópel, hertóku borgina og rændu þar og rupluðu.
- 1252 - Ögmundur Helgason í Kirkjubæ lét taka Sæmund Ormsson Svínfelling og Guðmund bróður hans af lífi.
- 1412 - Enska öldin: Yfir tuttugu ensk skip fórust við Ísland í miklu illviðri með fannfergi.
- 1419 - Á skírdag gerði mikið óveður með snjókomu. Hálfur þriðji tugur enskra skipa fórst við strendur Íslands.
- 1565 - Stóridómur var leiddur í lög á Íslandi.
- 1598 - Hinrik 4. gaf hann út Nantes-tilskipunina sem tryggði mótmælendum trúfrelsi og batt þar með enda á borgarastyrjöldina sem geisað hafði í Frakklandi.
- 1605 - Fjodor 2. varð Rússakeisari við lát Boris Godúnov.
- 1627 - Pólsk-litháíska samveldið vann sigur á Svíum í orrustunni við Hammerstein.
- 1742 - Óratórían Messías eftir Händel var frumflutt í Dyflinni á Írlandi.
- 1844 - Jón Sigurðsson var kosinn á þing með 50 atkvæðum af 52. Hann var oft þingforseti og sat á þingi til 1879.
- 1886 - Eggert Theódór Jónassen var skipaður amtmaður í Suður- og Vesturamti.
- 1895 - Baðhúsfélag Reykjavíkur var stofnað.
- 1919 - Amritsar-fjöldamorðin: Bretar myrtu 379 óvopnaða mótmælendur í Amritsar á Indlandi.
- 1936 - Knattspyrnumaðurinn Joe Payne skorar tíu m0rk í sama leiknum í enska boltanum og setur met.
- 1940 - Bretar hernámu Færeyjar.
- 1953 - Fyrsta skáldsagan um James Bond kom út í Bretlandi.
- 1956 - Um 200 þúsund danskir mótmælendur söfnuðust saman fyrir framan Kristjánsborg til að mótmæla lögum um vinnutíma.
- 1970 - Appollóáætlunin: Súrefnistankur sprakk í Appollo 13 svo áhöfnin neyddist til að lenda geimfarinu.
- 1972 - Alþjóðapóstsambandið ákvað að líta á Alþýðulýðveldið Kína sem eina fulltrúa Kína og rak þar með Lýðveldið Kína úr sambandinu.
- 1975 - Árás byssumanna á kirkju í Ain El Remmeneh-hverfi Beirút ásamt árás á rútu með óbreyttum borgurum þar sem 17 Palestínumenn lágu í valnum markaði upphaf Líbanska borgarastríðsins.
- 1975 - Forseti Tjad, François Tombalbaye, var myrtur í herforingjauppreisn sem Félix Malloum leiddi gegn honum.
- 1976 - Fjörutíu létust í sprengingu í vopnaverksmiðju í Lapua í Finnlandi.
- 1984 - Indverjar lögðu svæðið við Siachen-jökul í Kasmír undir sig.
- 1986 - Jóhannes Páll 2. heimsótti samkomuhús gyðinga í Róm fyrstur páfa.
- 1986 - Fyrsta barnið sem óskyld staðgöngumóðir gekk með fæddist í Bandaríkjunum.
- 1987 - Portúgal og Alþýðulýðveldið Kína undirrituðu samkomulag um að stjórn Maká gengi til Kína árið 1999.
- 1990 - Sovétríkin báðust formlega afsökunar á fjöldamorðunum í Katynskógi.
- 1997 - Tiger Woods varð yngsti kylfingurinn í sögunni sem sigraði Masters-golfmótið.
- 2007 - Bílanaust og Olíufélagið ESSO sameinuðust og stofnuðu N1.
- 2010 - Jarðskjálfti varð í vestanverðu Kína, 6,8 á Richter. Yfir 1000 manns fórust í skjálftanum.
- 2012 - Norðurkóreski gervihnötturinn Kwangmyŏngsŏng-3 sprakk skömmu eftir geimskot.
- 2015 - Tékkneski aðgerðasinninn Vít Jedlička lýsti yfir sjálfstæði Líberlands.
- 2017 - Loftárásin á Nangarhar: Bandaríkjaher varpaði GBU-43/B MOAB-sprengju á miðstöð Íslamska ríkisins í Afganistan með þeim afleiðingum að 94 létust.
- 2021 - Ríkisstjórn Japans samþykkti að dæla geislavirku vatni frá Kjarnorkuverinu í Fukushima í Kyrrahaf yfir 30 ára tímabil.
Fædd
- 1350 - Margrét 3., greifynja af Flæmingjalandi (d. 1405).
- 1519 - Katrín af Medici, drottning Hinriks 2. Frakkakonungs (d. 1589).
- 1570 - Guy Fawkes, enskur samsærismaður (d. 1606).
- 1636 - Hendrik van Rheede hollenskur grasafræðingur (d. 1691).
- 1732 - Frederick North, breskur stjórnmálamaður (d. 1792).
- 1743 - Thomas Jefferson, 3. forseti Bandaríkjanna (d. 1826).
- 1852 - F.W. Woolworth, bandarískur kaupsýslumaður (d. 1919).
- 1876 - Þorbjörg Sigurðardóttir Bergmann, íslensk kaupsýslukona (d. 1952).
- 1877 - Jes Zimsen, íslenskur kaupmaður (d. 1938).
- 1899 - Alfred Schütz, austurrískur félagsfræðingur (d. 1959).
- 1906 - Samuel Beckett, írskt leikskáld (d. 1989).
- 1922 - Julius Nyerere, forseti Tansaníu (d. 1999).
- 1923 - Don Adams, bandarískur leikari (d. 2005).
- 1939 - Paul Sorvino, bandarískur leikari.
- 1939 - Seamus Heaney, írskur rithöfundur (d. 2013).
- 1940 - J. M. G. Le Clézio, franskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi.
- 1944 - Geirmundur Valtýsson, íslenskur tónlistarmaður.
- 1945 - Rúnar Júlíusson, íslenskur tónlistamaður (d. 2008).
- 1950 - Ron Perlman, bandarískur leikari.
- 1959 - Hermann Jón Tómasson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1960 - Rudi Völler, þýskur knattspyrnumaður.
- 1961 - Þröstur Leó Gunnarsson, íslenskur leikari.
- 1962 - Edivaldo Martins Fonseca, brasilískur knattspyrnumaður.
- 1963 - Garrí Kasparov, rússneskur stjórnmálamaður og skákmeistari.
- 1970 - Rick Schroder, bandarískur leikari.
- 1974 - Ruben Östlund, sænskur leikstjóri.
- 1984 - Atli Fannar Bjarkason, íslenskur blaðamaður og ritstjóri.
- 1988 - Anderson Luís de Abreu Oliveira, brasilískur knattspyrnumaður.
- 1991 - Tindra Frost, íslensk klámmyndaleikkona.
Dáin
- 1275 - Elinóra af Englandi, dóttir Jóhanns landlausa og kona Simon de Montfort (f. 1215).
- 1605 - Boris Godúnov, Rússakeisari (f. 1551).
- 1695 - Jean de la Fontaine, franskur rithöfundur (f. 1621).
- 1865 - Amanz Gressly, svissneskur jarðfræðingur (f. 1814).
- 1941 - Annie Jump Cannon, bandarískur stjörnufræðingur (f. 1863).
- 1945 - Elísabet Jónsdóttir, íslenskt tónskáld (f. 1869).
- 1967 - Friðþjófur Thorsteinsson, íslenskur knattspyrnumaður, þjálfari og formaður Knattspyrnufélagsins Fram (d. 1895).
- 1972 - Jóhannes Sveinsson Kjarval, íslenskur listmálari (f. 1885).
- 1972 - Helgi Jónasson, íslenskur grasafræðingur (f. 1887).
- 1983 - Mercè Rodoreda, katalónskur rithöfundur (f. 1908).
- 1999 - Willi Stoph, austurþýskur stjórnmálamaður (f. 1914).
- 2015 - Günter Grass, þýskur rithöfundur (f. 1927).
- 2023 - Árni Tryggvason, leikari