[go: nahoru, domu]

Fara í innihald

Mósaík

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 9. júní 2009 kl. 17:51 eftir 157.157.31.95 (spjall) Útgáfa frá 9. júní 2009 kl. 17:51 eftir 157.157.31.95 (spjall)
Mósaík frá Pompei

Mósaík er mynd sem er sett saman úr litlum mislitum flísum (úr steini, gleri eða brenndum leir), sem mynda eina heild.

Mósaík á íslensku

Höfundar íslenskir hafa margir reynt að finna íslenskt heiti yfir mósaík, en ekkert eitt hefur haft sigur yfir önnur. Á meðal þeirra orða sem komið hafa upp má til dæmis nefna orð eins og: steinfella (eða steinfellumynd), steinglit (eða steinglitsmynd), flögumynd eða glerungsmynd. Jón Trausti rithöfundur kallaði mósaík steintiglaleggingu er hann skrifaði um mósaíkverkin í Grünes Gewölbe þegar hann ferðaðist um Þýskaland árið 1905.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Snið:Tengill ÚG