[go: nahoru, domu]

Fara í innihald

Cameron Diaz

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 5. mars 2012 kl. 22:57 eftir MystBot (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. mars 2012 kl. 22:57 eftir MystBot (spjall | framlög) (r2.7.1) (Vélmenni: Bæti við: mn:Камерон Диас)
Cameron Diaz
Cameron Diaz árið 2009.
Cameron Diaz árið 2009.
Upplýsingar
FæddCameron Michelle Diaz
30. ágúst 1972 (1972-08-30) (51 árs)
San Diego, Kalifornía
Fáni Bandaríkjana Bandaríkin
Ár virk1988-1993 (fyrirsæta)
1994-nú (leikkona)
Golden Globe-verðlaun
Besta Leikkona í Aðalhlutverki 1999

There's Something About Mary“ - Tilnefning
Besta Leikkona í Aukahlutverki 2000
Being John Malkovich“ - Tilnefning
Besta Leikkona í Aukahlutverki 2001
Vanilla Sky“ - Tilnefning
Besta Leikkona í Aukahlutverki 2002

Gangs of New York“ - Tilnefning
BAFTA-verðlaun
Besta Leikkona í Aukahlutverki 2000
Being John Malkovich“ - Tilnefning
Screen Actors Guild-verðlaun
Besta Leikkona í Aukahlutverki 2000

Being John Malkovich“ - Tilnefning
Besta Leikkona í Aukahlutverki 2002

Vanilla Sky“ - Tilnefning
AFI-verðlaun
Leikkona ársins 2002
Vanilla Sky“ - Tilnefning

Cameron Diaz (fædd 30. ágúst 1972) er bandarísk leikkona og fyrrverandi fyrirsæta. Hún varð fyrst þekkt sem fyrirsæta seint á níunda áratug 20. aldar eftir að hafa setið fyrir í auglýsingum margra þekktra fyrirtækja og prýtt forsíður frægra tímarita frá því hún var aðeins sextán ára þar til hún var 22 ára gömul. Snemma á tíunda áratugnum skaust Diaz svo upp á stjörnuhimininn þegar hún lék aðalhlutverk í kvikmyndinni The Mask og seinna í fleiri vinsælum myndum á borð við My Best Friend's Wedding og She's the One. Hún varð heimsfræg og eitt helsta kyntákn upphafs 21. aldar fyrir leik sinn í stórsmellunum There's Something About Mary, Charlie's Angels, og Shrek. Diaz hefur einnig hlotið fjórar tilnefningar til Golden Globe-verðlauna fyrir leik sinn í myndunum There's Something About Mary, Being John Malkovich, Vanilla Sky og Gangs of New York.

Æska

Cameron Michelle Diaz fæddist þann 30. ágúst 1972 í San Diego borg í Kaliforníu. Hún var annað barn foreldra sinna og á eina eldri systur. Foreldrar hennar höfðu ákveðið áður en hún fæddist að ef barnið yrði stelpa myndi hún heita Cameron en annars hefði nafnið orðið Menachem El Genio eða Sebastian Emilio.[1] Faðir hennar var mælingamaður í meira en tuttugu ár áður en hann fór á eftirlaun árið 1998. Föðurforeldrar hennar voru Kúbverjar og höfðu flust til Bandaríkjanna stuttu eftir fæðingu hans. Móðir hennar var komin af Englendingum, Þjóðverjum og Indíánum. Þó faðir hennar hafi talað spænsku ólst Diaz upp talandi ensku.[2] Í barnæsku ólst hún upp í nágrenni við margar mexíkóskar fjölskyldur og var mikill menningarlegur munur á þeim og Kúbverjum.[3] Hún var mjög ung þegar fjölskyldan flutti norður frá San Diego til Long Beach þar sem hún ólst upp og gekk í grunnskóla. Hún þótti góður nemandi þrátt fyrir að hún eyddi mestöllum tíma sínum í amerískan fótbolta og að stympast við strákana. Hún hafði verið mikill aðdándi íþróttarinnar alveg frá barnæsku en faðir hennar hafði látið dætur sínar horfa á leiki til þess að kenna þeim mikilvægi samvinnu.[4] Þegar Diaz var fjórtán ára hóf hún nám við Long Beach Polytechnic High School. Í skólanum var Snoop Dogg sem var árinu eldri og játar Diaz að hún hafi einu sinni keypt kannabis af honum.[5][6] Sem táningur hlustaði hún mikið á þungarokk og var oft erfiður unglingur. Hún kom seinna heim á kvöldin en foreldrar hennar höfðu leyft henni og einu sinni kom hún drukkin heim.[7] „Ég skemmti mér mikið sem unglingur“ sagði Diaz í viðtali þegar hún lýsti æsku sinni, „Ég fór mikið á tónleika, út á lífið, drakk mjög mikið af áfengi og keyrði mótorhjól. Þetta var allt mjög gaman“. Á meðan hún var í gagnfræðaskóla eyddi hún miklum tíma með sama fólkinu og sagði að þau hefðu verið eins og fjölskylda. „Strákarnir sem ég var með pössuðu mikið uppá mig af því þeir voru mikið eldri og ég var eins og litla systir þeirra. Þeir hefðu drepið hvern þann sem reyndi við mig“.[8]

Módelstörf

Diaz hóf feril sinn sem fyrirsæta aðeins sextán ára gömul þegar tískuljósmyndarinn Jeff Dunas sá hana dansa í teiti í Hollywood. Hún hafði fengið mörg tilboð frá svokölluðum útsendurum sem sögðust ætla að breyta Diaz í fyrirsætu. Það var þó ekki fyrr en Dunas rétti henni nafnspjald og vildi hitta foreldra hennar að hún ákvað að fara í prufu. Faðir hennar tók sér frídag úr vinnunni til þess að hitta hann og lærði allt um fyrirsætu iðnaðinn sem hann gat áður en hann samþykkti að dóttir sín mætti samþykkja boð hans.[9] Viku seinna skrifaði hún undir samning við Elite Model Management, sem á þeim tíma var eitt helsta umboðsfyritækið í bransanum.[10] Foreldrar hennar sýndu henni mikinn stuðning á þessum tíma en kröfðust þess að hún myndi klára gagnfræðiskólann sem hún gerði. Eftir að hafa útskrifast frá Long Beach Polytechnic High School, flaug Diaz beint til Japan og hitti þar myndbands leikstjórann Carlos de la Torre. Torre leikstýrði auglýsingu sem hún lék í fyrir L.A Gear og féll strax fyrir honum og reyndi allan daginn að tala við hann. Á næstu fimm árum ferðaðist hún víða um Evrópu, Mexíkó, Ástralíu, Afríku, og Asíu til þess að fara í tökur hjá stórum fyrirtækjum á borð við Calvin Klein, Levi's, Coca-Cola og Nivea þar sem henni var borgað 2.000 bandaríkjadali á hverjum einasta degi.[11] Hún sat einnig fyrir forsíðu tímaritsins Seventeen í júlí 1990 rétt áður en hún varð átján ára gömul og ári síðar var hún flutt til Parísar. Aðeins tveimur árum síðar birtist hún í klámmynd sem kölluð var She's No Angel og myndi síðar verða fræg undir nafninu She's No Angel: Cameron Diaz.[12] [13] Þegar hún var 21 árs gömul sá Hollywood-umboðsmaður nokkrar myndir af henni og bað um passamyndir af henni frá Elite Model Management sem hann sendi í kvikmyndaver. Hann flaug henni svo til Los Angeles og skrifaði undir samning við umboðsstofu.

Leikferill

Upphaf: 1994-96

Mynd:Camerondiazthemask.jpg
Cameron Diaz ásamt Jim Carrey í The Mask

Þó Cameron hafði aðeins unnið sem fyrirsæta áður þá langaði henni að gerast kvikmyndaleikkona. Sumarið 1993 var undirbúningur fyrir nýja gamanmynd í gangi. Búið var að ráða hinn efnilega grínista Jim Carrey í aðalhlutverk myndarinnar sem hét The Mask en enn vantaði að velja leikkonu í hlutverk aðalkynbombu myndarinnar Tinu Carlyle. Upprennandi fyrirsæta að nafni Anna Nicole Smith sem komið hafði fyrir í Playboy ári áður og var valin leikfélagi ársins 1993 hafði verið boðið hlutverkið í The Mask og vildu framleiðendur helst fá hana til að leika Tinu. Einnig var Vanessu Williams boðið hlutverkið. Framleiðendur sendu út auglýsingar fyrir smáhlutverk í myndinni til margra umboðsfyrirtækja fyrir fyrirsætur þar á meðal Elite Model Management. Diaz var ráðin í hlutverk þar sem hún fékk tvær línur í myndinni en var hún mjög ákveðin því að næla sér í hlutverk Tinu Carlyle.[14] Eftir sína fyrstu prufu með Carrey var leikstjóri myndarinnar Chuck Russell sannfærður að hún væri sú rétta fyrir hlutverkið. Framleiðendur myndarinnar voru ekki jafn vissir og töldu þeir hana ekki vera nógu reynda sem leikkonu til þess að taka á svona stórt hlutverk. Diaz fór tólf sinnum í áheyrnarprufu og Russell hótaði að hætta í myndinni til þess hún fengi hlutverkið sjö dögum áður en tökur hófust. [15][16][17] Diaz sagði í viðtali að hún hefði verið svo taugaveikluð á meðan hún beið eftir fréttum um hlutverkið að hún hefði hvorki getað borðað né sofið og fengið magasár. Fyrsti tökudagurinn var einnig mjög erfiður fyrir hana þar sem henni leið óglatt og hélt hún myndi valda vonbrigðum og verða rekin eins og skot. Stuttu eftir hún var ráðin fór Diaz að sækja leiklistartíma og réð til sín einkaþjálfarann John Kirby. Hún sótti tíma til hans tvisvar á viku í klukkutíma þar sem hann hjálpaði henni með framkomu og aðferð. Eftir að tökum á The Mask lauk fór Diaz leit að fleiri verkefnum í von um að fá fleiri hlutverk. Hún fór í prufu fyrir myndina Things to Do in Denver When You're Dead í mars 1994 en var hafnað.[18][19] Þann 27. júlí það ár kom The Mask út í bíóhús í Bandaríkjunum við frábærar tökur hjá áhorfendum og hlaut Diaz mikið lof gagnrýnenda. Myndin, sem kostaði rúmar 23 milljónir bandaríkjadala að búa til, græddi rúmlega fimm sinnum það í Bandaríkjunum og voru heildarekjur hennar yfir $350 milljónir.[20] Seinna það ár endaði fimm ára ástarsamband hennar og Carlos de la Torre sem hún hafði verið með síðan hún var sautján ára gömul og samkvæmt Diaz skildu þau á jákvæðum nótum. „Hann er ein mikilvægasta manneskja í lífi mínu en það var nauðsynlegt fyrir mig að flytja út og komast að því hver ég er.“[21] Stuttu eftir The Mask kom út hlaut hún hlutverk Sonyu Blade í kvikmyndinni Mortal Kombat sem byggð var á samnefndri tölvuleikjaseríu og þurfti hún að sækja tíma í bardagalist fyrir atriði hennar í myndinni. Stuttu áður en tökur hófust þurfti Diaz að hætta við að leika í myndinni eftir hún braut únliðinn sinn í Karate æfingu.[22][23] [24] Stuttu seinna var hún þó komin með nýtt hlutverk í lítilli kvikmynd að nafni The Last Supper sem var leikstýrð og framleidd af upprennandi leikstjóra að nafni Stacy Title. Diaz var ráðin í hluverk Jude sem í myndinni er ein sex frjálslyndra háskólnemenda sem ákveða að bjóða öfgafullum hægrisinnum í kvöldmat og myrða þá. Myndin, sem var auglýst sem svört komedía, hlaut litla athygli í kvikmyndahúsum vegna þess hún var aðeins gefin út í takmarkaðan tíma.[25] Eftir Last Supper kom út fylgdu henni nokkrar aðrar litlar kvikmyndir eins og She's the One þar sem Cameron lék fyrrverandi mellu sem snýr aftur í líf tveggja bræðra sem hún hafði áður verið með en voru nú báðir komnir í sambönd.

Mynd:Diazreevesfeelingminnesota.jpg
Diaz ásamt Keanu Reeves í myndinni Ást og slagsmál í Minnesota

Í myndinni verða þeir báðir ástfangnir af henni en þegar Diaz las handritið fannst henni persónan ekki nógu viðkunnaleg til þess að vinna hjörtu þeirra beggja og stakk upp á því að persónan yrði endurskrifuð. Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar Edward Burns samþykkti og voru viðtækar breytingar gerðar á handritinu fyrir hana. Diaz sagði hún vildi leika hlutverkið af því hún hefði áhuga á persónum í kvikmyndum sem gerðu slæma hluti af því hún vorkenndi þeim á einhvern hátt. „Mér finnst áhugavert að finna manngæskuna í persónum eins og henni og að reyna að breyta þeim í alvöru manneskjur“.[26] Hið sama ár birtist hún í þremur öðrum litlum kvikmyndum að nafni Svartnætti, Höfuð upp úr vatni, og Ást og slagsmál í Minnesota. Í þeirri síðarnefndu lék Diaz á móti leikaranum Keanu Reeves sem á þeim tíma var ein stærsta stjarnan í kvikmyndabransanum. Áður en myndin kom út sagði Reeves í viðtali að hún væri mjög hæfileikarík og hún „[gæti] farið mjög djúpt inn í hlutverk sitt til þess að lífga næstum því persónuna sína“. Hann sagði einnig að „ef nokkur önnur leikkona hefði leikið hlutverk hennar, þá hefði Freddie (persónu Diazar í myndinni) ekki verið jafn áhugaverð. Hún er sjaldgæf blanda af fegurð og hæfileikum og gerir það mjög létt og skemmtilegt að vinna með henni.“ Í sama viðtali útskýrði hún óhefðbundið val sitt af hlutverkum með því að segja, „Ég veit það er algjör klisja, en ég vil þurfa að reyna á mig í hlutverkum mínum. Það er ekkert mál að leika þessa týpísku kynbombu í venjulegri Hollywood mynd. Maður fær enga sérstaka reynslu á því og lærir ekki neitt á því sem leikari. Ég stefndi beint í þá átt um tíma en ég vildi það ekki“.[27] Ekkert af myndum Diazar sem gefnar út voru árið 1996 hlutu mikla athygli áhorfenda né gagnrýnenda og sagði hún seinna í viðtali að hún hafði ekki gert myndirnar í von um að þær fengju miklar tekjur en frekar fyrir reynsluna og var hún á þeim tíma komin með tvær aðrar myndir sem hún þurfti að vinna að.

Upprennandi stjarna: 1997-98

Haustið 1996 hóf Diaz vinnu að næstu kvikmynd hennar My Best Friend's Wedding. Í myndinni lék Diaz aukahlutverk en með aðalhlutverkið fór leikkonan Julia Roberts sem á þeim tíma var ein stærsta kvenstjarnan í kvikmyndaiðnaðinum og var það var hún sem valdi Diaz í hlutverkið.[28] Myndin yrði hennar fyrsta stórmynd síðan hún þreytti frumraun sína í The Mask tveimur árum áður. Á meðan að tökum stóð myndaðist mikil vinátta á milli leikkvennanna og lýsti Diaz því í viðtali: „Við höfðum það svo gaman á meðan að tökum stóð. Ég var agndofa yfir Juliu. Ég eyddi mikið meiri tíma í því að fylgjast með henni leika heldur en að leika sjálf“. Roberts sýndi mikinn stuðning við hana og sagði Diaz hana alltaf hafa verið til staðar þegar hún þurfti á henni að halda.[29] Myndin kom út í kvikmyndahúsum þann 20. júní 1997 og fór beint í annað sætið í Bandaríkjunum og tók inn rúmar 22 milljónir bandaríkjadala fyrstu helgina. Seinna af tveimur myndum hennar það ár hét A Life Less Ordinary sem hinn breski Danny Boyle leikstýrði. Þar lék hún á móti Ewan McGregor sem var einnig upprennandi stjarna í kvikmyndabransanum. Myndin var gefin út þann 24. október 1997 í Bandaríkjunum og Bretlandi en fékk töluverða litla athygli frá áhorfendum og var aðeins tvær vikur í kvikmyndahúsum þar. Diaz fullyrti samt að hún taldi myndina vera ein af þeim bestu sem hún hafði gert þangað til. „Ég held það sé langt í land þangað til litið verður á mig sem alvöru leikkonu“ sagði Diaz í viðtali eftir að myndin kom út þegar hún útskýrði af hverju henni hefði ekki verið boðin nein meiri vinna það ár.[30] Hún kom fram í cameo hlutverki sem ljóshærð sjónvarpskona í myndinni Fear and Loathing in Las Vegas. Velgengni hennar árið 1998 skilaði af sér mikilli athygla fjölmiðla og var mikið umtal um hana ekki bara í blöðum heldur líka á internetinu þar sem margir aðdáendur ræddu um hana. Hið sama ár var hún einnig nefnd ein af tíu best klæddu stjörnum ársins af slúðurtímaritinu People þar sem hún var kölluð „nýjasta ást Bandaríkjanna“ og hafði verið nefnd ein af fimmtíu fallegustu manneskjum ársins nokkrum mánuðum áður.[31] [32]

Það er eitthvað við Mary

Mynd:CamerondDiazTheresSomethingAboutMary.jpg
Diaz í hlutverki sínu sem Mary í Það er eitthvað við Mary

Í lok ársins 1997 hóf Diaz vinnu að næstu mynd hennar að nafni Það er eitthvað við Mary. Myndin, sem var í leikstjórn Farrelly bræðranna, skartaði margar af helstu upprennandi leikurum í kvikmyndabransanum þar á meðal Ben Stiller og þáverandi kærasta Diaz, Matt Dillon og fjallaði um mann sem ræður til sín einkaspæjara til þess að hafa uppi á æskuástinni sinni Mary sem leikin var af Diaz. Annar leikstjóri myndarinnar, Bobby Farrelly sagði það hefði verið sjálfsögð ákvörðun að velja hana í hlutverkið af því hún væri svo „sérstök blanda af fegurð, óttaleysi, og frábæru skopskyni. Eins og Grace Kelly“.[33] Myndin kom út í Bandaríkjunum þann 17. júlí 1998 og tók inn rúmar 13 milljónir bandaríkjadala fyrstu helgina sína og lenti í fjórða sæti, en mjög jákvætt umtal í blöðum, sjónvarpi og á veraldarvefnum varð til þess að myndinni fór að ganga mjög vel í kvikmyndahúsum og eftir átta vikur komst í fyrsta sætið. Myndin gekk í heilar tuttugu og fjórar vikur í kvikmyndahúsum og tók yfir 300 milljónir bandaríkjadala á heimsvísu.[34] Af öllum leikurum í myndinni hlaut Diaz mestu athyglina og sagði einn gagnrýnandi hún hafi verið „meira ljómandi en nokkru sinni fyrr“.[35] Hún var einnig tilnefnd til Golden Globe verðlauna fyrir bestu leikkonu í gamanmynd og voru það fyrstu virtu verðlaun sem hún hafði þá verið tilnefnd til og taldi það mikinn heiður þótt hún hafi ekki unnið. [36]Þó flestir gagnrýnendur og áhorfendur voru yfir sig hrifnir af myndinni þótti mörgum húmorinn vera aðeins of grófur og hneykslandi þar á meðal fyrir bróður Mary sem er fatlaður og er uppspretta að mörgum bröndurum í myndinni. Diaz varði hann samt í viðtali, „[Húmorinn í myndinni] er ekki illgjarn eða neitt þannig. Við erum ekki að gera grín að neinum sem á það ekki skilið. Við erum heldur ekki að gera grín að fötluðu fólki. Við erum að gera grín að fólkinu sem gerir grín að þeim“.[37] [38]

Gagnrýnendur: 1999-2002

Eftir árangur hennar árið 1998 tók að streyma hlutverkum til hennar og fór hún næst að vinna að nýju mynd Oliver Stones, Any Given Sunday. Í myndinni lék hún á móti leikurum á borð við Al Pacino, Jamie Foxx, LL Cool J og Charlton Heston og sagði hún reynsluna hafa ekki bara verið spennandi heldur líka ógnvekjandi. Hún fór með hlutverk Christinu Pagniacci, eiganda Amerísks fótboltaliðs sem myndin fjallar um og er litið á hana sem hálfgerðann skúrk myndarinnar. Mikið af atriðum í myndinni voru mjög krefjandi fyrir hana þar á meðal eitt þar sem hún hélt ræðu í skiptiklefa fullan af allsberum körlum. „Það var eitt af þessum atriðum þar sem þú ferð bara þarna inn og sinnir starfi þínu“ sagði Diaz í viðtali eftir að myndin kom út „Ég er viss um að Oliver var bara að reyna að taka þetta eins langt og hann gat. Ég hafði ekki neitt á móti þessu. Ég gat gert þetta“.[39] Hún sagði reynsluna vera engu lík að hafa unnið með Pacino og Stone og sagðist hafa liði eins og tólf ára stúlku með spangir á meðan hún var að leika í myndinni, „Þarna eru Al Pacino og Oliver Stone og þeir bjóða mér að vera með þeim í myndinni. Það er eiginlega ekki hægt að segja nei við því“. Myndin kom út í desember 1999 og tók inn rúma 100 milljónir bandaríkjadala út um allan heim en fékk mjög misjafna dóma meðal gagnrýnenda. Næsta hlutverk hennar í Being John Malkovich varð til þess hún fékk mikil fagnaðarlæti frá gagnrýnendum allstaðar að. Myndin, sem var svört kómedía, fjallaði um leikbrúðustjórnanda sem finnur skotrauf sem leiðir mann í huga John Malkovich en Diaz fór með hluverk eiginkonu leikbrúðustjórnandans. Mikið af farða var sett á hana í myndinni og þurfti hún að láta lita hárið á sér brúnt og krulla það fyrir hlutverkið og fannst mörgum hún vera alveg óþekkjanleg í hlutverki sínu. Eftir hún skipti um útlit fyrir myndina tók hún mikið eftir því að allt öðruvísi fólk byrjaði að tala við hana úti á götu heldur en þegar hún var ljóshærð.[40]

Mynd:Diazdaylewisgangsnewyork.png
Cameron Diaz og Daniel Day Lewis í kvikmyndinni Gangs of New York

Við útgáfu hlaut Being John Malkovich mikið lof gagnrýnenda og þar á meðal var Diaz heiðruð fyrir að hafa „horfið inn í persónu sína og orðið einhver önnur manneskja heldur en hún sjálf“.[41] Fyrir myndina fékk Diaz tilnefningar til Golden Globe Verðlauna fyrir Bestu Leikkonu í Aukahlutverki og BAFTA verðlauna og var mikið talað um að hún ætti að vera tilnefnd til Óskarsverðlauna það ár en ekki varð úr því. Hið sama ár tók hún að sér hlutverk í þremur öðrum myndum, The Invisible Circus, Things You Can Tell Just by Looking at Her, og í Man Woman Film þar sem hún birtist í cameo hlutverki. Árið 2000 birtist hún í kvikmynda útgáfu af vinsælu sjónvarpsseríunni Charlie's Angels frá 8. áratug 20. aldar á móti Drew Barrymore og Lucy Liu. Það var eina myndin sem hún gerði árið 2000 og hún vann ekki aftur fyrr en árið eftir þegar hún talaði fyrir Fíónu prinsessu í teiknimyndinni Shrek sem varð 22 tekjuhæsta mynd allra tíma þegar hún kom fyrst út [42] Síðari mynd hennar árið 2001 hét Vanilla Sky og fór hún með eitt af þremur aðalhlutverkum í myndinni á móti Tom Cruise og Penélope Cruz. Diaz var tilnefnd til níu verðlauna fyrir leik sinn í myndinni þar á meðal ein tilnefning til Golden Globe Verðlauna fyrir Bestu Leikkonu í Aukahlutverki. Heilu ári síðar hlaut hún sína fjórðu tilnefningu til Golden Globe verðlauna fyrir myndina Gangs of New York sem leikstýrð var af Martin Scorsese. Diaz lék vasaþjóf að nafni Jenny í myndinni og á í ástarsambandi við persónu sem Leonardo DiCaprio leikur en Daniel Day-Lewis fer einnig með eitt af aðalhlutverkunum í myndinni. Til þess að kenna henni að ræna úr vösum var frægur ítalskur maður sem hafði starfað sem vasaþjófur í yfir 30 ár fenginn til þess að kenna henni.[43] Tökur á myndinni höfðu átt sér stað í Rómarborg á Ítalíu frá ágúst 2000 fram í apríl árið eftir og var áætlað að gefa myndina út um jólin 2001 en útgáfu myndarinna var seinkað um heilt ár eftir hryðjuverkin 11. september 2001.[44][45] Þegar myndin kom loksins út fékk hún frábæra dóma og var tilnefnd til 10 óskarsverðlauna og tók inn rúmar 200 milljónir bandaríkjadala. Diaz var meðal annars tilnefnd til Golden Globe verðlauna fyrir hlutverk sitt en vann ekki.[46]

Áframhaldandi frægð: 2003-08

Mynd:Diazangels2003.png
Cameron Diaz, Drew Barrymore og Lucy Liu í Charlie's Angels: Full Throttle

Árið 2002 hófst vinna að framhaldi Charlie's Angels og komst það fljótt í fréttirnar að Cameron Diaz myndi verða ein af aðeins tveimur leikkonum til þess að fá 20 milljónir bandaríkjadala fyrir eina mynd en Julia Roberts sem hafði leikið með henni í My Best Friend's Wedding sex árum áður var þá eina leikkonan sem hafði fengið svo mikið í laun fyrir eitt hlutverk.[47] Diaz hafði fengið mikið slæmt umtal í blöðum stuttu fyrir útgáfu myndarinnar eftir hún kom fram í spjallþætti Jay Leno í mjög stuttum kjól og án brjóstahaldara og benti á hversu gegnsær kjóllinn hennar væri með því að benda á brjóstvörturnar sínar.[48] Charlie's Angels: Full Throttle kom út í kvikmyndahús í júlí 2003 en gekk ekki jafn vel og sú fyrri og þótti ekki vera vel heppnuð af flestum gagnrýnendum og áhorfendum. Diaz sagði samt í viðtali að henni væri sama hvernig myndinni gengi í kvikmyndahúsum af því hún hafði skemmt sér svo mikið við það að búa til myndina. [49] Árið 2003 vann hún svo að framhaldinu af Shrek, Shrek 2, og átti síðan næst að fara að leika aftur á móti Jim Carrey í myndinni Fun With Dick and Jane en það átti að vera í fyrsta skipti sem þau myndu birtast saman í mynd síðan þau léku á móti hvort í The Mask tíu árum áður en þegar upptökuáætluninni var seinkað fram til haustsins 2004 þurfti hún að hætta við vegna þess hún var þegar bókuð fyrir þann tíma.[50][51][52] Vorið 2004 fór Diaz að leika í næstu mynd hennar In Her Shoes sem var byggð á samnefndri bók frá árinu 2002. Höfundur bókarinnar var ekki hæstánægð með það að Diaz skyldi vera ráðin af því hún taldi hana ekki líta út fyrir að vera gyðingur eins og persóna hennar var. Framleiðendur myndarinnar leystu þetta með því að hafa persónuna aðeins hálfann gyðing.[53] Myndin kom ekki út fyrr en haustið 2005 og þrátt fyrir góða dóma gekk ekki sérstaklega vel í kvikmyndahúsum. Shrek 2 kom út 23. júní 2004 og tók inn næstum því einn miljarð bandaríkjadala um allan heim og varð fimmta tekjuhæsta mynd allra tíma fram til þess. [54]

Mynd:Camdiaztheholiday.jpg
Cameron Diaz ásamt Jude Law í myndinni The Holiday'

Vinsældir myndarinnar varð til þess að þriðja og fjórða Shrek teiknimyndin varð plönuð aðeins stuttu eftir útgáfu annarrar.[55] Stuttu eftir In Her Shoes kom út fór Diaz beint aftur að vinna að þriðju Shrek myndinni og tók að sér hlutverk í mynd að nafni The Holiday sem var skrifuð af og í leikstjórn Nancy Meyers. Tökur á myndinni hófust snemma á árinu 2006 og lék hún á móti mörgum frægum leikurum eins og Kate Winslet, Jack Black, og Jude Law í henni sem fjallaði um tvær konur (eina í Bandaríkjunum og Bretlandi) sem eru báðar um það leiti að gefast upp á ástinni og ákveða að skiptast á húsum yfir jólin. Diaz lék eina af tveimur konunum og skrifaði Meyers hlutverk hennar með hana í huga. [56][57][58][59] Diaz sagði í viðtali að hún hefði tekið við þessu hlutverki af því henni fannst svo létt að finna persónuna sína í sér af því „allir hafa átt í svona ástarsamböndum sem slitna. En ég elskaði hvernig hún sýndi hugrekki. Hún hefur fjarlægt sig frá þessu örugga ástandi og farið á brott alveg ein á báti. Með því að gera það finnur hún út hver hún er“.[60] Hún sagði einnig að þetta hefði verið hlutverkið sem reyndi mest á hana líkamlega vegna þess hún þurfti að hlaupa ansi mikið á háum hælum.[61] The Holiday kom út í kvikmyndahúsum í desember 2006 og varð ekki mjög vinsæl í Bandaríkjunum en tók inn meira en 200 milljónir bandaríkjadala á heimsvísu. [62][63][64][65] Næsta mynd hennar í kvikmynda húsum var þriðja myndin í Shrek seríunni Shrek the Third sem kom út sumarið 2007 og voru öll augu á Cameron og Justin Timberlake en Diaz hafði reddað honum hlutverki í myndinni en þau höfðu hætt saman stuttu eftir vinnu lauk á myndinni. Diaz og Timberlake sannfærðu fjölmiðla á rauða dreglinum að þau væru ennþá vinir og föðmuðust og kysstu hvort annað á kinnarnar.[66] Helgina sem myndin opnaði tók hún inn yfir 120 milljónir bandaríkjadala og var það þá þriðja tekjuhæsta opnunarhelgi allra tíma en yfirhöfuð fékk myndin lægri tekjur heldur en sú fyrri og var þetta fyrsta myndin í seríunni til þess að fá almennt slæma dóma frá gagnrýnendum. Stuttu áður en myndin kom út tók Cameron Diaz við hlutverki í rómantískri gaman mynd að nafni What Happens in Vegas þar sem hún átti að leika á móti Ashton Kutcher. Myndin fjallaði um bláókunnugt fólk sem vaknar einn morgun saman í Las Vegas og finnur út að þau séu gift og hafi unnið pottinn í spilavíti sem hvorugt þeirra langar að deila með hvort öðru.[67] Vinna á myndinni hófst haustið 2007 og átti sér stað í bæði Las Vegas og New York borg. Við útgáfu myndarinnar vakti What Happens in Vegas litla athygli aðallega út af harðri samkeppni við stórar myndir eins og Indiana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull og Iron Man og olli því vonbrigðum þrátt fyrir að hafa meira en tvöfaldað ráðstöfunarfé sitt bara í Bandaríkjunum. Hið sama ár var Diaz nefnd tekjuhæsta leikkonan í Hollywood með 50 milljónir bandaríkjadala í laun fyrir aðeins tvær myndir (What Happens in Vegas og Shrek the Third) en var hún með átján milljónum hærri laun heldur en næsta leikkona fyrir neðan sig, Keira Knightley.[68][69]

Fjölbreyttari hlutverk: 2009-dagsins í dag

Mynd:Camdiazbadteacher.png
Cameron Diaz sem Elizabeth Halsey í myndinni Bad Teacher

Árið 2009 kom Cameron Diaz fram í tveimur hlutverkum mjög ólíkum frá því sem hún hafði leikið í áður. Hið fyrra af tveimur hlutverkum var sem fyrrverandi lögfræðingur sem snýr aftur í réttarsalinn þegar 13 ára dóttir þeirra fer í mál við þau til þess að leysa hana úr ánauð svo hún þurfi ekki að gefa deyjandi systur sinni nýra. Myndin hét My Sister's Keeper og var byggð á vinsælli bók eftir Jodie Picoult. Diaz undirbúði sig mikið fyrir hlutverkið og eyddi miklum tíma með mæðrum veikra barna. Þegar spurð af hverju hún ákvað að taka við hlutverkinu sagði hún „Mér finnst þetta vera mjög raunveruleg saga sem mjög margar geta sett sig í samband við“. [70] Við útgáfu myndarinna fengu Diaz og meðleikarar hennar í myndinni mikið lof fyrir leik þeirra í myndinni en yfirhöfuð hlaut myndin slæma dóma fyrir leikstjórn Nick Cassavetes .[71] Þann 22. júní 2009 var Cameron Diaz heiðruð með stjörnu á hinu fræga Walk of Fame í Hollywood og mættu þar hundruðir aðdáenda hennar í athöfnina ásamt allri fjölskyldu sinni og vinum. Í ræðu sinni þakkaði hún sérstaklega fjölskyldu sinni og sagði, „[Stuðningur þeirra] er það sem hefur veitt hér styrkinn og hugrekkið til þess að lifa þessu óhefðbundna lífi og það er það sem knýir áfram logann sem brennur í brjósti mér“.

[72] Hið seinna af tveimur hlutverkum í myndinni var í þriðju mynd Richard Kelly að nafni The Box sem hafði verið kvikmynduð tveimur árum áður og geymd í nokkurn tíma þangað til ákveðið var að gefa hana út í mars 2009. Útgáfu var svo seinkað fram í september og stuttu seinna aftur fram í nóvember. fékk myndin litla athygli vegna þess lítið hafði verið gert til þess að auglýsa hana. Diaz hafði lengi verið mikill aðdándi Kelly eftir að hafa séð mynd hans Donnie Darko og um leið gripið tækifærið til þess að leika í mynd hans. „Hann er svo einstakur kvikmyndagerðamaður og getur tjáð hugmyndir sínar á svo sérkennilegann hátt“. [73] Hún birtist síðan ekki aftur á hvíta tjaldinu fyrr en árið eftir þegar fjórða og síðasta Shrek myndin Shrek: Sæll alla daga kom út í kvikmyndahús og sneri Diaz aftur sem Fíóna prinsessa. Önnur mynd með henni kom út sumarið 2010 en það var spæjaramynd með rómantísku ívafi sem Diaz hafði verið að vinna að í meira en ár. Hún hafði lesið handritið og stungið upp á því að hún og vinur hennar og fyrrverandi mótleikari í Vanilla Sky myndu leika saman í henni sem þá hét Wichita og seinna Trouble Man.[74] Vorið 2009 fóru fréttir að berast að Cruise og Diaz myndu sameinast á ný í myndinni og sagði Diaz frá í viðtölum hversu mikið hana hlakkaði til, „Ég er rosa spennt. Þetta er hasarmynd og ég get ekki beðið eftir því að vinna með [Cruise]“. [75] Tökur á myndinni, sem þá var búið að endurskíra Knight and Day hófust haustið 2009 og lýsti Diaz reynslunni vera ólík nokkru sem hún hafði gert áður af því hún ferðaðist svo mikið fyrir myndina en það var tekið upp í Illinois, Massachusetts, Kaliforníu, Austurríki, Spáni, og Jamaíka.[76] „Þetta var ótrúlega gaman. Ég elska að geta gert bardaga atriði og þarna var alveg heil vika af marblettum, sárum, tognum og brákun á hálsi. Ég þurfti að fara á Golden Globe verðlaunin og ég var með marbletti og kúlur upp hendurnar og fæturnar á mér“.[77] Árið 2011 birtist Diaz í tveimur kvikmyndum sú fyrri hét Græna vespan sem varð byggð á samnefndum sjónvarpsþáttum frá sjöunda áratugi 21. aldar. Hin seinni hét Bad Teacher og var hlutverk hennar þar ólíkt nokkru sem hún hafði leikið áður. Persóna hennar var kennari að nafni Elizabeth Halsey sem er alveg sama um alla nemendu sína og bölvar á þá, dettur í það og reykir gras á skólatíma. Hún hyggst kvænast nýjum varakennara við skólann, Scott Delacorte, sem er bæði ríkur og myndalegur en hún telur sig líklegri til þess að vinna hylli hans með því að fara í brjóstaaðgerð. „Þegar ég las handritið fyrst hugsaði ég það er engin leið að ég geti leikið hana. Mér líkar ekki við hana. Og þá var ég aðeins búin að lesa tíu blaðsíður en síðan þegar ég var búin með 20 blaðsíður fannst mér Elizabeth vera mjög fyndin. Og síðan las ég aðrar tíu blaðsíður og ég gat ekki látið handritið frá mér og þegar ég var búin var ég staðráðin í því að leika hlutverkið“.Það vakti mikla athygli að fyrrverandi kærasti Diaz, Justin Timberlake færi með hlutverk Scotts og fullyrtu þau bæði í viðtölum að þau væru enn góðir vinir. „Justin er svo fyndinn og svo hæfileikaríkur. Það var alveg upplagt að fá hann í þetta hlutverk, hann er sá eini sanni í það“ sagði Diaz í viðtali og bætti við að „það besta við þessa mynd eru leikararnir. Það er svo hæfileikaríkur hópur sem kemur hérna fram og við skemmtum okkur öll“. [78]

Einkalíf

Ástarsambönd

Ástarsamband Diazar og Matt Dillons vakti mikla athygli fjölmiðla.

Árið 1990, þegar Diaz var sautján ára, lék hún í auglýsingu fyrir L.A. Gear og varð um leið ástfangin af myndbandsframleiðandanum, Carlos de la Torre, sem var tíu árum eldri en hún. Hún eyddi öllum deginum að reyna að fá hann til þess að tala við sig. „Ég gaf henni engan gaum“ sagði de la Torre í viðtali, „Það er tabú að reyna við fyrirsæturnar þegar þú vinnir fyrir fyrirtækið sem sér um þær“. Hann hringdi í hana daginn eftir og um ári seinna höfðu þau keypt sér íbúð saman í Hollywood.[79] Þegar Diaz var 22 ára, eftir fimm ár með de la Torre, ákvað hún að hætta með honum og sagði hún í viðtali: „Hann er frábær og við erum ennþá vinir, ég elska hann. Hann er mjög mikilvæg manneskja í lífi mínu en ég þurfti að flytja út og finna út hver ég væri“.[80] Árið 1996, á meðan Diaz var við tökur á myndinni Feeling Minnesota í Minnesota-fylki, Bandaríkjunum hitti hún leikarann Matt Dillon sem var líka að taka um mynd þar. „Við höfum þroskast svo mikið saman og ég elska hann mjög mikið“ sagði hún í viðtali þegar aðspurð um sambandið. Þegar tökum á myndinni lauk héldu þau áfram sambandinu þrátt fyrir að þau byggju á sitthvorum enda Bandaríkjanna, hún í Los Angeles og hann í New York. Samband þeirra vatki mikla athygli fjölmiðla og sást til þeirra kyssast á götuhorni í Manhattan og á veitingastöðum. Hún fullyrti samt fjölmiðla að hún væri ekki tilbúin að gifta sig, „Ég vil eignast fjölskyldu, en það er ekki eitthvað sem ég hugsa um núna“. Parið kom fram saman í myndinni There's Something About Mary sem varð ein vinsælasta mynd ársins 1998 en þau hættu saman stuttu eftir að tökum lauk. Dillon sagðist ekki hafa verið tilbúinn að gerast ráðsettur og eignast fjölskyldu. Í viðtali árið 2006 sagðist Dillon sjá eftir skilnaðinum og hann hafi tapað einni af stærstu ástum lífs hans, „Ég varð ástfanginn. Það er mjög kraftmikil tilfinning þegar manni líður þannig í garð einhvers. Cameron var menntagyðja mín. Þangað til hafði ég ekki verið í neinum hjartnænum ástarsamböndum áður“.[81] Í mars 1999 fór Diaz að eiga í sambandi með leikaranum Jared Leto. Hvorugt þeirra talaði um sambandið við fjölmiðla og sagði hún í viðtali að oft hefði hún komið heim eftir viðtöl og skammað sjálfa sig fyrir að segja of mikið í staðinn fyrir að segja: „Veistu hvað, mig langar ekki til þess að svara þessarri spurningu“ og þess vegna hafði hún ákveðið að svara ekki spurningum um einkalíf sitt.[82] Sumarið 2000 bárust fregnir að parið hefði hætt saman en Diaz þverneitaði öllum orðrómum og sagði, „Þessi tilköll særa Jared meira heldur en mig. Ég er vön þessu. Við erum mjög hamingjusöm“.[83] Mikið birtist í fréttum um þau tvö á næstu árum og vakti það mikla athygli þegar sást til Leto úti á lífinu ásamt Paris Hilton og Diaz með Leonardo DiCaprio. Í janúar 2003 sást mikið til Diazar með dýrann demantshring á baugfingri og var það þá sem parið opinberaði trúlofun sína en hún hafði þá staðið í næstum því þrjú ár.[84] Þótti það þess vegna koma mikið á óvart þegar þau slitu sambandinu í apríl það ár eftir fjögur ár saman.[85]

Justin Timberlake

Sumarið 2003 sást mikið til Diazar og söngvarans Justin Timberlakes en hún hafði ferðast með honum þegar hann var á tónleikaferðalagi um Bandaríkin. Samband þeirra vakti mikla athygli fjölmiðla og voru endalausir orðrómar um það að annað þeirra hafði haldið framhjá eða þau væru hætt saman.

Fjölskylda

Cameron Diaz ásamt foreldrum sínum árið 1995.

Diaz hefur allt sitt líf átt í mjög nánu sambandi við systur sína og segist tala við hana á hverjum degi. Þann 15. apríl 2008 dó faðir hennar, Emilio, úr lungnabólgu. Diaz, sem var þá önnum kafin við tökur á myndinni My Sister's Keeper, tók sér frí frá allri vinnu og flaug heim til fjölskyldu sinnar. Viku eftir fráfall Emilios hélt fjölskyldan minningarathöfn þar sem yfir 400 manns mættu þar á meðal fyrrverandi kærasti Diazar Justin Timberlake. Diaz sagði í yfirlýsingu fyrir fjölmiðla: „Hann var örlátur vinur, góður afi, framúrskarandi faðir og artarlegur eiginmaður“.[86]

Pólitík og umhverfisvinna

Diaz studdi Al Gore í bandarísku forsetakosningunum árið 2000 og var meðal annars klædd í bol sem á stóð „Ég kýs ekki soninn hans Bush!“ (I Won't Vote For a Son of a Bush!).[87] Fjórum árum síðar, á næstu forsetakosningum, vakti hún mikla athygli eftir að hafa gert athugasemdir á spjallþætti Opruh Winfrey. Hún sagði: „[Konur] eru með rödd núna og við erum ekki að nota hana og konur hafa svo mikið að tapa. Ég meina, við gætum tapað réttinum á líkömum okkar. Ef þér finnst að nauðgun ætti að vera lögleg þá skalt þú ekki kjósa. En ef þér finnst að þú eigir rétt á þínum eigin líkama og þú hafir rétt á að ákveða hvað gerist fyrir þig, þá skalt þú kjósa“. Diaz var á móti því að George W. Bush yrði endurkosin sem forseti og þótti hún meina með þessari athugasemd að ef fólk myndi kjósa Bush væri það að lögleiða nauðgun.[88][89] Hún hefur einnig verið mjög áberandi sem umhverfissinni og árið 2005 var hún með sinn eigin umhverfis-sjónvarpsþátt að nafni Trippin' á MTV sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum. Í þáttunum ferðaðist Diaz, nánir vinir hennar og þáverandi kærasti hennar Justin Timberlake til hjásettra staða í heiminum og ræða um hvernig ætti að „vernda jörðina, varðveita orku, koma í veg fyrir gróðurhúsaáhrif og hjálpa ættflokkum í frumskógum að halda áfram að lifa lífi sínu eins og þeir gera“.[90] Þátturinn dróg að sér mikið af neikvæðri gagnrýni sérstaklega frá bandaríska bloggaranum Maddox sem á vefsíðu sinni dæmdi Diaz fyrir að gagnrýna hversu „heimurinn sem við byggjum í hefði farið úr böndunum“ á meðan hún væri að fá tuttugum milljónir bandaríkjadala fyrir hvera einustu mynd sem hún léki í, keyrði Lexus bíl og byggi í þrigja hæða höll eins og hann orðaði það.[91]

Gagnrýni

Sumarið 2007, þegar Diaz var í fríi í Perú vakti hún mikla athygli fyrir að vera með handtösku sem á stóð „Þjónið almúganum“ með rauðri stjörnu á. Orðtakið var slagorð Mao Zedongs, fyrrum leiðtoga Kína, en „Sendero Luminoso“ samtökin sem var hópur Maóista í Perú sem drap næstum því 70.000 manns á 9. og 10. áratug 20. aldar og voru margir Perúmenn móðgaðir. „Þetta orðtak beinir óbeint að hugtaki sem skaðaði Perú svo mikið“ sagði Pablo Rojas, mannréttinda-aðgerðasinni í Perú. Diaz baðst afsökunar í yfirlýsingu sem hún gaf út stuttu eftir ferð hennar lauk þar sem hún baðst afsökunar ef hún skyldi hafa óviljandi móðgað einhverja. „Ég keypti töskuna í Kína og áttaði mig ekki á því hvernig hann gæti sært ákveðna aðila“.[92][93][94]

Kvikmyndalisti

Ár Kvikmynd Hlutverk Athugasemd Heimstekjur
1992 She's No Angel: Cameron Diaz Nakin kona Stuttmynd Ófáanlegt
1994 The Mask Tina Carlyle $351.583.407
1995 The Last Supper Jude $459.749
1996 She's the One Heather $9.538.948
Feeling Minnesota Freddie Clayton $3.124.440
Head Above Water Nathalie $32.212
Keys to Tulsa Trudy $57.252
1997 My Best Friend's Wedding Kimberly Wallace ALMA-verðlaun fyrir leikkonu í kvikmynd
Blockbuster-verðlaun fyrir uppáhalds leikkonu í aukahlutverki í grínmynd
Tilnefnd – Satellite-verðlaun fyrir leikkonu í aukahlutverki í kvikmynd.
$299.288.605
A Life Less Ordinary Celine Naville $4.366.722
1998 Fear and Loathing in Las Vegas Fréttakona Cameo hlutverk $10.680.275
There's Something About Mary Mary Jensen American Comedy-verðlaun fyrir fyndnustu leikkonu í aðalhlutverki
Blockbuster-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki - gamanmynd
New York Film Critics Circle-verðlaun fyrir bestu leikkonu í gamanmynd
Tilnefnd — ALMA-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki
Tilnefnd – Golden Globe-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki í gamanmynd
$369.884.651
Very Bad Things Laura Garrety $9.898.412
1999 Man Woman Film Dægurstjarna Cameo hlutverk Ófáanlegt
Being John Malkovich Lotte Schwartz Tilnefnd — American Comedy-verðlaun fyrir fyndnustu leikkonu í aukahlutverki
Tilnefnd – BAFTA-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki
Tilnefnd – [Chlotrudis-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki
Tilnefnd – Golden Globe-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki
Tilnefnd – Las Vegas Film Critics Society-verðlaun fyrir bestu Leikkonu í aukahlutverki
Tilnefnd – Online Film Critics Society Award-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki
Tilnefnd – Satellite-verðlaun fyrir bestu kvikmyndaleikkonu í aukahlutverki
Tilnefnd – Screen Actors Guild-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki
$22.863.596
Things You Can Tell Just by Looking at Her Carol Faber Ófáanlegt
The Invisible Circus Faith $77.578
Any Given Sunday Christina Pagniacci ALMA-verðlaun fyrir bestu leikkonu í kvikmynd
Blockbuster Entertainment-verðlaun fyrir uppáhalds leikkonu - dramamynd
$100.230.832
2000 Charlie's Angels Natalie Cook Tilnefnd – Saturn-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki
Tilnefnd – Satellite-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki í gamanmynd
Tilnefnd — MTV Movie-verðlaun fyrir bestu ummæli í kvikmynd (fyrir „I signed the release, so you can stick anything you want in my slot!“.)
$264.105.545
2001 Shrek Fíóna Prinsessa Teiknimynd $484.409.218
Vanilla Sky Julie Gianni Boston Society of Film Critics-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki
Chicago Film Critics Association Verðlaun fyrir Bestu Leikkonu í Aukahlutverki
Tilnefning— AFI-verðlaun fyrir bestu leikkonu
Tilnefnd — ALMA-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki
Tilnefnd – Broadcast Film Critics Association-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki
Tilnefnd – Golden Globe-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki
Tilnefnd – Phoenix Film Critics Society-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki
Tilnefnd – Saturn-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki
Tilnefnd – Screen Actors Guild-verðlaun fyrir framúrskarandi leik konu í kvikmynd.
$203.388.341
2002 The Sweetest Thing Christina Walters $68.696.770
Gangs of New York Jenny Everdeane Tilnefnd – Golden Globe-verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki $193.772.504
2003 Charlie's Angels: Full Throttle Natalie Cook $259.175.788
2004 Shrek 2 Fíóna Prinsessa Teiknimynd $919.838.758
2005 In Her Shoes Maggie Feller Tilnefnd — Imagen Foundation-verðlaun fyrir bestu leikkonu $83.073.883
2006 The Holiday Amanda Woods $205.135.324
2007 Shrek the Third Fíóna Prinsessa Teiknimynd $798.958.162
2008 What Happens in Vegas Joy McNally $219.375.797
2009 My Sister's Keeper Sara Fitzgerald Tilnefnd — ALMA-verðlaun fyrir framúrskarandi leikkonu í kvikmynd $95.714.875
The Box Norma Lewis $33.333.531
2010 Shrek: Sæll alla daga Fíóna Prinsessa Teiknimynd
Tilnefnd — Annie-verðlaun fyrir rödd í teiknimynd
$752.600.867
Knight and Day June Havens $261.930.436
2011 Græna vespan Lenore Case $227.817.248
Bad Teacher Elizabeth Halsey $209.239.414 (Enn í sýningu)
2012 Gambit PJ Puznowski
What to Expect When You're Expecting Jules Tökur standa nú á[95]

Heimildir

  1. Tom Gillato (22. ágúst 1994), http://www.people.com/people/archive/article/0,,20103708,00.html, People Magazine
  2. Christine James (2002), http://web.archive.org/web/20071210230318/http://www.reel.com/reel.asp?node=features/interviews/diaz, Reel.com
  3. Lawrence Grobel (1. mars 1997), http://www.movieline.com/1997/03/candid-cameron.php?page=2, MovieLine
  4. http://www.people.com/people/gallery/0,,639320_3,00.html
  5. http://latimesblogs.latimes.com/gossip/2011/01/cameron-diaz-snoop-dogg-pot-weed-marijuana-poly-high-school.html
  6. Fréttablaðið (22. janúar 2011), http://epaper.visir.is/media/201101220000/pdf_online/1_45.pdf
  7. http://www.movieline.com/1997/03/candid-cameron.php?page=2
  8. Jan Jansen (23. júlí 2000), http://findarticles.com/p/articles/mi_qn4161/is_20000723/ai_n14512693/, Sunday Mirror
  9. http://findarticles.com/p/articles/mi_qn4161/is_20000723/ai_n14512693/
  10. PEOPLE (2010),http://www.people.com/people/cameron_diaz/biography, People Magazine
  11. http://movies.yahoo.com/movie/contributor/1800020297/bio
  12. iloveindia (2007), http://lifestyle.iloveindia.com/lounge/cameron-diaz-2075.html,
  13. Seventeen Magazine (2009), http://www.seventeen.com/fun/articles/65th-anniversary-cover-archive
  14. Dana Kennedy (23. mars 1994), http://www.ew.com/ew/article/0,,301520,00.html, Entertainment Weekly
  15. Bio.com (2011), http://www.biography.com/articles/Cameron-Diaz-9273866
  16. http://xfinity.comcast.net/slideshow/entertainment-camerondiaz/3/
  17. yahoo.com (2011), http://movies.yahoo.com/movie/contributor/1800020297/bio
  18. http://www.cameron-diaz.org/career/rumored-projects/, CameronDiaz.org
  19. http://www.ew.com/ew/article/0,,301520,00.html
  20. http://boxofficemojo.com/movies/?id=mask.htm, Box Office Mojo
  21. http://www.movieline.com/1997/03/candid-cameron.php?page=4
  22. Matthew Hawkins (Desember 2010), http://www.heavy.com/movies/2009/12/cameron-diaz-was-almost-in-mortal-kombat/, Heavy.com
  23. http://www.cameron-diaz.com/profile/index.html, Cameron-Diaz.com
  24. ThespianNet.com (1999), http://www.thespiannet.com/actresses/D/diaz_cameron/cameron_diaz.shtml
  25. Rovi Corporation (2011), http://www.allrovi.com/movies/movie/v154322
  26. Tiscall corp. (2010), http://www.talktalk.co.uk/entertainment/film/biography/artist/cameron-diaz/biography/16?page=5
  27. Dennis Hunt (8. september 1996), http://pqasb.pqarchiver.com/sandiego/access/1242875371.html?dids=1242875371:1242875371&FMT=ABS&FMTS=ABS:FT&type=current&date=Sep+08%2C+1996&author=Dennis+Hunt&pub=The+San+Diego+Union+-+Tribune&desc=Cameron+Diaz%3A+She's+the+one+in+`Feeling+Minnesota'&pqatl=google, The Sand Diego Union Tribune.
  28. http://www.imdb.com/title/tt0119738/trivia, International Movie Database
  29. http://www.movieline.com/1997/03/candid-cameron.php
  30. Ireland Film and Television Net Interviews, (30. október 1997), http://home.planet.nl/~meisner/iftn.html, Cameron Chameleon
  31. People (14. september 1998), http://www.people.com/people/archive/article/0,,20126255,00.html
  32. People (11. maí 1998), http://www.people.com/people/archive/article/0,,20125246,00.html
  33. Entertainment Weekly (26. júní 1998), http://www.ew.com/ew/article/0,,283769,00.html, Cameron Diaz: The It Girl
  34. Box Office Mojo, http://boxofficemojo.com/movies/?page=main&id=somethingaboutmary.htm
  35. James Berardinelli (1998), http://www.reelviews.net/movies/t/theres_something.html, Reelviews
  36. http://www.imdb.com/title/tt0129387/awards
  37. http://www.totalfilm.com/features/the-evolution-of-cameron-diaz/there-s-something-about-mary-1998
  38. Jess Cagle (27. júlí 2011), http://edition.cnn.com/SHOWBIZ/Movies/9807/27/farrelly.bros/index.html?iref=allsearch, CNN
  39. Winnipeg Sun Monday (27. desember 1999), http://velvet_peach.tripod.com/fpacanygivensunday.html
  40. Paul Fischer (1999), http://www.crankycritic.com/qa/diaz_keener.html, Cranky Critic Star Talk
  41. James Berardinelli (1999), http://www.reelviews.net/movies/b/being_john.html
  42. http://boxofficemojo.com/alltime/world/
  43. http://www.imdb.com/title/tt0217505/trivia
  44. WENN (12. apríl 2001), http://www.imdb.com/news/ni0070428/
  45. WENN (9. október 2001), http://www.imdb.com/news/ni0065286/
  46. http://boxofficemojo.com/movies/?id=gangsofnewyork.htm
  47. WENN (1. febrúar 2002), http://www.imdb.com/news/ni0054170/
  48. WENN (26. júní 2003), http://www.imdb.com/news/ni0058588/
  49. WENN (9. júlí 2003), http://www.imdb.com/news/ni0056173/
  50. TNPihl (22. júlí 2004), http://www.jimcarreyonline.com/forum/viewtopic.php?f=15&t=1958
  51. ContactMusic (11. júní 2003), http://www.contactmusic.com/new/xmlfeed.nsf/story/diaz-and-carrey-for-dick-and-jane
  52. Killer Movies (22. júlí 2004), http://www.killermovies.com/f/funwithdickandjane/articles/4254.html
  53. Nate Bloom (17. maí 2004), http://www.jewishworldreview.com/0504/jewz_in_the_newz.php3, Jewz in the Newz
  54. http://boxofficemojo.com/alltime/world/
  55. WENN (10. júní 2004), http://www.imdb.com/news/ni0100381/
  56. http://www.imdb.com/title/tt0457939/trivia
  57. http://kvikmyndir.is/KvikmyndirMovie/entry/movieid/3311#
  58. Rebecca Murray (9. september 2005), http://movies.about.com/od/winsletkate/a/holiday093005.htm
  59. Sofpedia (30. september 2005), http://news.softpedia.com/news/Kate-Winslet-and-Cameron-Diaz-Go-On-Holiday-9630.shtml
  60. indieLondon (2006), http://www.indielondon.co.uk/Film-Review/the-holiday-cameron-diaz-interview
  61. Chuck the Movie Guy (25. nóvember 2006), http://www.youtube.com/watch?v=BpGFKEzTtQw
  62. StarPulse (28. október 2005), http://www.starpulse.com/news/index.php/2005/10/28/jack_black_cameron_diaz_aamp_kate_winsle
  63. TimeOut (29. september 2005), http://www.timeout.com/film/news/669/kate-winslet-to-holiday-with-cameron-diaz.html
  64. Isabel Rodriguez (14. desember 2005), http://www.elmulticine.com/noticias2.php?orden=357
  65. Total Film (29. september 2005), http://www.totalfilm.com/news/winslet-and-diaz-on-holiday
  66. WENN (8. maí 2007), http://www.imdb.com/news/ni0055046/
  67. Variety (17. maí 2007), http://www.variety.com/article/VR1117965023?refCatId=1876
  68. Lacey Rose (11. ágúst 2008), http://www.forbes.com/2008/08/07/diaz-knightly-aniston-biz-media-cx_lr_0811actresses.html, Forbes
  69. Hollyscoop Team (23. júlí 2008), http://www.hollyscoop.com/cameron-diaz/forbes-names-cameron-diaz-highest-paid-actress.html
  70. Rove McManus (12. júlí 2009), http://www.youtube.com/watch?v=TZuvQa23vhA
  71. http://www.rottentomatoes.com/m/10010662-my_sisters_keeper/
  72. BBC News (23. júní 2009), http://news.bbc.co.uk/2/hi/entertainment/8114293.stm
  73. http://www.youtube.com/watch?v=zwYGLHSbs50
  74. http://www.imdb.com/title/tt1013743/trivia
  75. Lara Martin (25. júní 2010), http://www.digitalspy.co.uk/movies/news/a162034/diaz-very-excited-about-cruise-reunion.html, Digital Spy
  76. http://www.imdb.com/title/tt1013743/locations
  77. Clevver Movies (19. júní 2010), http://www.youtube.com/watch?v=N0_-cpz_mwk
  78. Clevver Movies (10. júní 2011), http://www.youtube.com/watch?v=dDGCCJSS2eQ
  79. Tom Gliatto (22. ágúst 1994), http://www.people.com/people/archive/article/0,,20103708,00.html, People Magazine
  80. http://www.movieline.com/1997/03/candid-cameron.php?page=all
  81. WENN (24. júlí 2006), http://www.hollywood.com/news/Dillon_Attempts_to_Explain_Diaz_Split/3536260, Hollywood.com
  82. Ron Dicker (28. október 1999),http://articles.sfgate.com/1999-10-28/entertainment/28588098_1, SF Gate
  83. WENN (21. júlí 2000), http://www.culture.com/news/item/4701/cameron-and-jared-never-split-up.phtml
  84. WENN (22. janúar 2003), http://www.imdb.com/news/ni0066162/
  85. WENN (24. apríl 2003), http://www.imdb.com/news/ni0052608/
  86. Lisa Ingrassia (5. maí 2011), http://www.people.com/people/article/0,,20196080,00.html, People
  87. http://www.liberalartists.com/cgi-bin/index.cgi?action=viewnews&id=595
  88. Derek Gilbert (30. september 2004), http://derekpgilbert.wordpress.com/2004/09/30/cameron-diaz-voting-for-bush-is-voting-for-rape/
  89. http://www.discussanything.com/forums/showthread.php/64317-Cameron-Diaz-Implies-a-Vote-for-Bush-is-Vote-for-Legalized-Rape
  90. http://www.mtv.com/shows/trippin/episodes.jhtml
  91. Maddox (2005), http://www.thebestpageintheuniverse.net/c.cgi?u=trippin
  92. Caris Davis (25. júní 2007), http://www.people.com/people/article/0,,20043642,00.html, People.com
  93. http://today.msnbc.msn.com/id/19410813/ns/today-entertainment/t/cameron-diaz-apologizes-carrying-mao-bag/
  94. http://www.dailymail.co.uk/tvshowbiz/article-463979/Cameron-Diaz-Mao-bag-row-land-Incas.html
  95. What to Expect When You're Expecting