[go: nahoru, domu]

Fara í innihald

Fríúlí

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 10. apríl 2024 kl. 17:48 eftir Krun (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. apríl 2024 kl. 17:48 eftir Krun (spjall | framlög) (Krun færði Friúlí á Fríúlí)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Fríúlí (ítalska: Regione autonoma Friuli-Venezia Giulia; fríúlíska: Friûl-Vignesie Julie; króatíska og slóvenska: Furlanija - Julijska krajina; þýska: Friaul-Julisch Venetien) er hérað á Norðaustur-Ítalíu sem markast af Venetó í vestri og landamærum Austurríkis og Slóveníu í norðri og austri með strönd að Adríahafi í suðri. Höfuðstaður héraðsins er borgin Tríeste. Íbúafjöldi er um 1,2 milljónir. Langstærsti hluti héraðsins er hið sögulega hérað Fríúlí með höfuðstað í Údíne, en það inniheldur að auki Venezia Giulia á landamærunum við Slóveníu og Austurríki með höfuðstað í Tríeste. Þessu síðastnefnda svæði var bætt við eftir Síðari heimsstyrjöldina þegar Júgóslavía hafði fengið stærstan hlutann af því sem áður taldist héraðið umhverfis Tríeste. Í héraðinu eru stórir þýskumælandi og slóvenskumælandi hópar. Vegna menningarlegrar sérstöðu hefur héraðið takmarkaða sjálfstjórn.

Sýslur (province)

[breyta | breyta frumkóða]
Kort sem sýnir Fríúlí.
Kort sem sýnir sýsluskiptingu Fríúlí.