[go: nahoru, domu]

Fara í innihald

Halldór Laxness

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 20. október 2010 kl. 08:36 eftir 194.144.9.87 (spjall) Útgáfa frá 20. október 2010 kl. 08:36 eftir 194.144.9.87 (spjall) (→‎Verk Laxness á netinu)
Mynd:HalldorLaxness gamall.jpg
Halldór á efri árum.

Halldór (Kiljan) Laxness (fæddur Halldór Guðjónsson 23. apríl 1902, dáinn 8. febrúar 1998) var íslenskur rithöfundur og skáld, jafnan talinn einn helsti íslenski rithöfundurinn á 20. öld.

Halldór var sonur Sigríðar Halldórsdóttur (fædd 1872) og Guðjóns Helgasonar (fæddur 1870). Fyrstu æviárin bjó hann í Reykjavík en flutti að Laxnesi í Mosfellssveit árið 1905.

Hann tók fljótt að lesa bækur og skrifa sögur, og þegar hann var 14 ára gamall fékk hann sína fyrstu grein birta í Morgunblaðinu undir nafninu H.G. Ekki löngu síðar birti hann grein í sama blaði undir sínu eigin nafni og var sú grein um gamla klukku.

Á ferli sínum skrifaði Halldór 51 bók, margar blaðagreinar, samdi ljóð, leikrit og fleira. Til að sjá þau rit sem hann gaf út er hægt að skoða bókalistann hér að neðan.

Halldór hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum árið 1955. Hann var tvíkvæntur og eignaðist fjögur börn.

Frá árinu 1945 átti Halldór fast heimili á Gljúfrasteini í Mosfellssveit. Að frumkvæði Davíðs Oddsonar, forsætisráðherra keypti ríkissjóður Gljúfrastein af Auði Laxness, ekkju Halldórs, og opnaði þar safn til minningar um skáldið haustið 2004. Auður gaf safninu innbú þeirra hjóna.

Nafn

Halldór Laxness fæddist sem Halldór Guðjónsson, árið 1905 hóf fjölskylda hans búskap í Mosfellssveit í Laxnesi, og kenndi Halldór sig við þann bæ æ síðar.[1] Millinafnið Kiljan tók hann upp þegar hann skírðist til kaþólskrar trúar.[2]

Um Halldór Laxness

Málverk af Haldóri Laxness eftir Einar Hákonarson frá 1984

Hann var elstur í þriggja systkina hópi en yngri voru systur hans, Sigríður, fædd 1909 og Helga, fædd 1912. Foreldrar Halldórs voru Guðjón Helgi Helgason og Sigríður Halldórsdóttir. Guðjón, fæddur 1870, var af fátækri ætt en var bæði verklaginn og duglegur. Hann vann meðal annars í vegavinnu um allt Ísland og fékk fyrir það þokkaleg laun. Sigríður móðir Halldórs fæddist 1872 og var ættuð frá Ölfusi, hún fluttist ung til Reykjavíkur þar sem hún og Guðjón kynntust svo síðar.[3]

Árið 1905 seldi Guðjón húsið sitt í Reykjavík og keypti jörðina Laxnes í Mosfellsdal sem er 20 kílómetrum frá Reykjavík. Þangað fluttist Halldór með foreldrum sínum og móðurömmu, Guðnýju Klængsdóttur, ásamt vinnukonu og vinnumanni. Oftast var þó fleira fólk í Laxnesi, bæði gestir og vinnu- og kaupafólk og þar var alltaf nóg að gera. Halldóri fannst það gæfa hans að hafa fengið að reyna, að búa á stóru sveitaheimili og svo virðist sem hann hafi alist upp við góðar aðstæður í Laxnesi.[4]

„Halldór segir í bréfi til Stefáns Einarssonar að samkomulag á heilmilinu hafi ávallt verið gott og í minningasögunni Í túninu heima segir hann: „á þessari liðnu tíð kom hlýtt hjartalag, grandvör framkoma og virðíng fyrir náúnganum í staðinn fyrir réttlæti úr tölvu; þar var sú fegurð í mannlegri sambúð sem ekki varð lifað án þrátt fyrir alt og alt og alt.“[5]

Halldór Guðjónsson byrjaði að skrifa sem barn og fékk ungur áhuga á íslenskri tungu og beitti sér fyrir málrækt í Mosfellsdalnum. Hann gaf út fyrstu bók sína, Barn náttúrunnar, 1919 þá aðeins 17 ára gamall. Hann skrifaði bókina þegar hann var 16 ára og sat þá frekar á Landsbókasafninu að skrifa en að mæta í skólann. Börn náttúrunnar gaf glöggum bókarýnurum fyrirheit um það sem koma skyldi.[6]

Þegar Halldór var ungur maður fór hann að ferðast og dvaldi meðal annars í Vesturheimi á árunum 1927-1929, hann var í klaustri í Lúxemborg frá desember 1922 fram til haustsins 1923. Í klaustrinu tók hann kaþólska trú og var skírður og fermdur til kaþólskrar kirkju 6. janúar 1923.[7]

Halldór var tvíkvæntur, árið 1930 giftist hann Ingu Einarsdóttur og með henni átti hann soninn Einar, fæddan 1938.[8] Áður hafði hann eignast frumburð sinn með Málfríði Jónsdóttur, Maríu en hún var fædd 1923.

Seinni konu sinni kynntist Halldór á Laugarvatni 1939. Hún heitir Auður Sveinsdóttir og fæddist 30. júní 1918.

Halldór vildi fara rólega sakirnar og fyrstu árin eftir að þau byrjuðu að vera saman þurfti Auður að bíða þolinmóð eftir honum.[9] Auður var tilbúin til þess að færa fórnir fyrir Halldór og hún gat létt áhyggjum af skáldinu, hún var konan sem Halldór dreymdi um.[10] Auður og Halldór giftu sig hjá borgarfógeta 24. desember 1945. Þau fluttu að Gljúfrasteini árið 1945 en það hús létu hjónin byggja. Það var draumur Halldórs að eignast heimili á sínum bernskuslóðum og þau fengu arkitektinn Ágúst Pálsson til þess að teikna húsið. Auður sá að mestu um að fylgjast með húsasmíðunum á meðan Halldór einbeitti sér að skrifum.[11] Halldór og Auður eignuðust tvær dætur þær Sigríði, hún var fædd 26. maí 1951 og Guðnýju sem er þremur árum yngri, fædd 23. janúar 1954.[12]

Halldór Laxness fékk fjöldan allan af viðurkenningum fyrir ritstörf sín. Nóbelsverðlaunin eru hvað merkilegust en dæmi um aðrar viðurkenningar sem honum hlottnuðust voru; Menningarverðlaun ASF, Silfurhesturinn (bókmenntaverðlaun dagblaðanna) og virt dönsk verðlaun, kennd við Martin Andersen Nexö, svo eitthvað sé nefnt. Árið 1968, þegar Aabo háskólinn í Finnlandi átti 50 ára afmæli var Halldór gerður að heiðursdoktor við skólann.

Það var árið 1955 sem hann var sæmdur Nóbelsverðlaununum og það hafði strax jákvæð áhrif. Bækurnar voru í kjölfarið þýddar á fleiri tungumál og menn sem höfðu ekki gefið verkunum gaum áður fóru og kynntu sér bækurnar. Það var í Stokkhólmi sem Halldór veitti verðlaununum viðtöku frá þáverandi konungi Svía, Gústaf VI Adolf, nánartiltekið í Hljómleikahúsinu við Kóngsgötuna. Verðlaunin, Nóbelsskjalið og gullpeningurinn eru varðveitt í Þjóðminjasafninu og í myntsafni seðlabankans.[13]

Halldór skrifaði fjölmörg skáldverk, þýddi verk annarra yfir á íslensku og sendi frá sér greinar í dagblöð og tímarit. Alls skrifaði hann 13 stórar skáldsögur; Brekkukotsannál, Gerplu, Atómstöðina, Heimsljós I og II, 'Íslandsklukkuna, Kristnihald undir Jökli, Söguna af brauðinu dýra, Sölku Völku I og II, Sjálfstætt fólk I og II, Smásögur (öllum smásögum skáldsins safnað saman í eina bók), Vefarann mikla frá Kasmír og Guðsgjafarþula var svo síðasta skáldsagan sem hann skrifaði. Einnig orti Halldór ýmiskonar kvæði og gaf út fjórar minningasögur, ein þeirra er bókin Í túninu heima.[14] Auk þess samdi hann fimm leikrit og leikgerð að einni skáldsögu, en fyrsta leikritið samdi Laxness ekki fyrr en hann var orðinn þroskaður höfundur, Straumrof, 1934.[15]

Hann hafði sterka skoðun á þjóðfélaginu og til að mynda skrifaði Halldór tvær bækur um Sovétríkin sem ætlaðar voru til varnaðar þjóðskipulagi landsins.[16] Skrif skáldsins um hag íslensku þjóðarinnar hafa alltaf vakið mikla athygli, landinn reiddist honum ýmisst eða varð snortinn yfir einlægni hans.[17] Þegar Halldór var ungur umgengst hann mikið eldra fólk og talsmáti hans varð þess vegna háfleyglegur.[18] Hann ræktaði tungumálið meira en aðrir höfundar og notaði öðruvísi stafsetningu til þess að ná fram ákveðnum stíl í textann sem og mörg áhugaverð orð.[19]

Halldór er af mörgum talið eitt merkasta skáld 20. aldrainnar. Verkin hans eru fjölbreytt og hafa komið út í meira en 500 útgáfum og á 43 tungumálum auk móðurmálsins. Halldór þýddi sjálfur verk frá öðrum og þar má nefna Birtíng eftir Voltaire og Fjallkirkjunna eftir Gunnar Gunnarsson.[20] Þegar Halldór var orðinn gamall maður og heilsan farin að hraka fluttist hann á Reykjarlund. Þar var hann í fjögur ár og eftir því sem heislunni hrakaði varð hann oftar rúmliggjandi. Halldór Laxness lést áttunda febrúar 1998 þá orðinn 95 ára. Mesta skáld þjóðarinnar var fallið frá en segja má að hann lifi áfram í gegn um verkin sín. Í morgunblaðinu birtist grein eftir Mattías Johannessen skáld þar sem hann sagði, ásamt fleiru: „Þann dag sem Íslendingar gleyma ritsnilld Halldórs Kiljans Laxness gegna þeir ekki lengur hlutverki sínu sem þjóð.“[21]

Deilur um ævisögu Laxness

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor sagði frá því opinberlega sumarið 2003, að hann væri að skrifa ævisögu Laxness, en í kjölfarið reyndi Auður Laxness að meina honum aðgang að bréfasafni skáldsins á handritadeild Þjóðarbókhlöðunnar og tókst það. Ástæðan var sú að hún taldi Hannes ekki færan um að skrifa óhlutdræga ævisögu Laxness. Eftir að fyrsta bindi ævisögunnar, Halldór kom út gagnrýndu Helga Kress, prófessor og fleiri Hannes harðlega fyrir að fara frjálslega með tilvitnanir í texta skáldsins án þess að geta heimilda. (Hannes hefur síðar viðurkennt í viðtölum að hann hefði átt að geta heimilda í ríkara mæli en hann gerði.) Haustið 2004 höfðaði Auður mál gegn Hannesi fyrir brot á lögum um höfundarrétt. Hannes var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur 2006 en málinu var áfrýjað til Hæstaréttar og þar var Hannes dæmdur árið 2008 fyrir brot á höfundarrétti í fyrsta bindi af ævisögu Halldórs Laxness. Var honum gert að greiða 1,5 milljónir króna í fébætur og 1,6 milljónir í málskostnað.

Auður Laxness og fjölskylda hennar hefur lagt blessun sína yfir ævisögu skáldsins, sem rituð var af Halldóri Guðmundssyni, rithöfundi og veitti honum góðfúslega aðgang að bréfasafni og gögnum, sem voru í vörslu fjölskyldunnar.

Meint afskipti íslenskra ráðamanna af útgáfu rita Laxness í Bandaríkjununm

Guðný Halldórsdóttir, leikstjóri og dóttir skáldsins, sagði í Kastljósþætti sjónvarpsins 18. mars 2007Bjarni Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra hefði lagt stein í götu föður síns sem varð til þess að honum reyndist illmögulegt að gefa út bækur sínar á Bandaríkjamarkaði.

Verk

Skáldsögur

Smásögur

Leikrit

Ljóð

Ritgerðir og greinar

Ferðasögur

Minningasögur

Kvikmyndir gerðar eftir bókum Laxness

Neðanmálsgreinar

  1. Heimir Pálsson (1998): 65.
  2. Heimir Pálsson (1998): 65.
  3. Halldór Guðmundsson (2004): 7-14.
  4. Halldór Guðmundsson (2004): 17-19.
  5. Halldór Guðmundsson (2004): 19.
  6. Ólafur Ragnarsson (2002): 75-130.
  7. Ólafur Ragnarsson (2007): af myndasíðum á milli bls. 64-65.
  8. Halldór Guðmundsson (2004): 272.
  9. Halldór Guðmundsson (2004): 439-440.
  10. Halldór Guðmundsson. Halldór Laxness, ævisaga, bls. 501.
  11. Ólafur Ragnarsson (2007). 72-75.
  12. Halldór Guðmundsson (2004): 557-578.
  13. Ólafur Ragnarsson (2007): 183-201.
  14. Laxness.is. Sótt 22.4.2009.
  15. Gljúfrasteinn, Húss skáldsins. Kvikmyndadraumar. Sótt 23.4.2009.
  16. Hugvísindastofnun Háskóla Íslands. Um ævi og verk Halldórs Laxness: 129-131.
  17. Laxness.is. Sótt 22.4.2009.
  18. Ólafur Ragnarsson (2002): 75.
  19. Hugvísindastofnun Háskóla Íslands. Um ævi og verk Halldórs Laxness: 212-217.
  20. Gljúfrasteinn, Húss skáldsins. Skáldið. Sótt 23.4.2009.
  21. Ólafur Ragnarsson (2007): 345-347.

Heimildir

  • Heimir Pálsson (1998). Sögur, ljóð og líf. Vaka-Helgafell. ISBN 9979-2-1306-X. bls. 65
  • Hannes Hólmsteinn Gissurarson. 2003. Halldór. (Reykjavík: Almenna bókafélagið).
  • Hannes Hólmsteinn Gissurarson. 2004. Kiljan. (Reykjavík: Almenna bókafélagið).
  • Hannes Hólmsteinn Gissurarson. 2005. Laxness. (Reykjavík: Almenna bókafélagið).
  • Halldór Guðmundsson. 2004. Halldór Laxness. (Reykjavík: JPV). Sjá hér
  • Heimir Pálsson. Sögur, ljóð og líf (Reykjavík: Vaka-Helgafell, 1998).
  • Ólafur Ragnarsson. Halldór Laxness: Líf í skáldskap (Reykjavík: Vaka-Helgafell, 2002).
  • Ólafur Ragnarsson. Til fundar við skáldið, Halldór Laxness (Reykjavík: Veröld, 2007).
  • Ritaskrá. 2004, 12. mars. Sjá: http://www2.mbl.is/mm/serefni/laxness/ritaskra.html
  • Halldór Laxness. 2004, 12. mars. Sjá: http://www2.mbl.is/mm/serefni/laxness/

Tengt efni

Tenglar

Vefir

Verk Laxness á netinu

Greinar um Laxness