Karl 3. Bretakonungur
| ||||
Karl Bretakonungur
| ||||
Ríkisár | 2022- | |||
Skírnarnafn | Charles Philip Arthur George Ættarnafn: Mountbatten–Windsor | |||
Fæddur | 14. nóvember 1948 | |||
Buckinghamhöll, London | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Filippus prins, hertogi af Edinborg | |||
Móðir | Elísabet II Bretadrottning | |||
Eiginkonur | 1. Díana prinsessa af Wales, fædd Lafði Díana Spencer 2. Camilla hertogaynja af Cornwall, fædd Camilla Shand | |||
Börn | Karls og Díönu prinsessu:
|
Karl Bretakonungur (Charles Philip Arthur George, áður Karl, prinsinn af Wales) (f. 14. nóvember 1948), er þjóðhöfðingi Bretlands og 14 annarra ríkja í Breska konungsveldinu. Hann er elsta barn Elísabetar Bretadrottningar og Filippusar prins. Áður en hann erfði ríkið af móður sinni var Karl einnig hertogi af Cornwall og hertogi af Rothesay í Skotlandi. Hann erfði jafnframt titilinn hertogi af Edinborg við andlát föður síns í apríl 2021.[1]
Fjölskylda
29. júlí 1981 giftist Karl fyrri konunni sinni, Lafði Díönu Spencer að viðstöddum 3.500 gestum í Dómkirkju Heilags Páls í Lundúnum. Brúðkaupið var sent út í sjónvarpi og er áætlað að um 750 milljón manns hafi horft á athöfnina. Þau eiga tvo drengi:
- Vilhjálmur Bretaprins (f. 1982)
- Harry Bretaprins (f. 1984).
Hjónaband Karls og Díönu var ekki hamingjusamt þegar á leið og stóðu þau bæði í framhjáhaldi. Þau skildu árið 1996.
Þekktasta frilla Karls var Camilla Parker-Bowles sem er núverandi eiginkona hans en þau giftu sig árið 2005.
Valdatíð (2022–)
Við dauða móður sinnar Elísabetar 2. þann 8. september 2022 tók Karl við konungdómi.
Tilvísanir
- ↑ „HRH The Duke of Edinburgh“. College of Arms. 9. apríl 2021.