León
Útlit
León er borg í sjálfsstjórnarhéraðinu Kastilíu og León á Spáni. Borgin er höfuðstaður León-héraðs. Íbúar eru um 130 þúsund en rúm 190 þúsund á borgarsvæðinu.[1] Borgin var stofnuð sem rómverskt virki um 29 f.Kr. en blómstraði sem höfuðborg Konungsríkisins León árið 910. Það varð hluti af Konungsríkinu Kastilíu árið 1301 og hnignaði eftir það.
Byggingar og kennileiti
- Gotneska dómkirkjan er þekktasta kennileitið í León.
- Museo de Arte Contemporáneo de Castilla y León (skst. MUSAC) er nýlistasafn.
- Real Colegiata Basílica de San Isidoro eða einfaldlega San Isidoro, er kirkja í rómönskum stíl. Í kirkjunni er konunglegu grafhvelfing (Panteón Real), þar sem margir konungar Konungríkisins León hvíla.
Tilvísanir
- ↑ Borgarsvæðir Spánar 2021. Ministerio de Transportes, Movilidad y Agenda Urbana. Skoðað 7. febrúar 2022.