[go: nahoru, domu]

Fara í innihald

Stokkhólmur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 1. apríl 2015 kl. 15:56 eftir Tremonist (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. apríl 2015 kl. 15:56 eftir Tremonist (spjall | framlög) (bætti við Flokkur:Hansasambandið með HotCat)
Stokkhólmur
Stokkhólmur er staðsett í Svíþjóð
Stokkhólmur

59°21′N 18°4′A / 59.350°N 18.067°A / 59.350; 18.067

Land Svíþjóð
Íbúafjöldi 868.141 (31. mars 2012)
Flatarmál 187 km²
Póstnúmer 100 12 – 164 92
Vefsíða sveitarfélagsins http://www.stockholm.se/

Stokkhólmur (sænska: Stockholm) er höfuðborg Svíþjóðar og jafnframt stærsta borg landsins. Þar búa 868.141 manns (2012) en á öllu Stokkhólmssvæðinu (Stokkhólmur og nágrannasveitafélög) búa um 1,9 milljónir íbúa.

Nafnið

Fyrri hluti nafnsins, Stokkhólmur, er m.a. talinn kominn af þeirri aðferð til forna að stengja (þ.e. loka) milli eyja með stokkum (trjábolum) sem hefur líkilega verið gert til að stjórna skipaferðum og geta þar með innheimt tolla. Var þá búin til skipavirki úr ydduðum trjábolum sem stóðu ógnandi upp úr, svonefnt pålspärr á sænsku. Hólmurinn í nafninu er líklega Stadsholmen, en á honum var meginhluti borgarinnar á fyrstu árhundruðum hennar. Til eru þó fleiri útskýringar á nafninu.

Saga

Gata í Gamla Stan (Gamla Bænum)

Elstu ritaðar heimildir um Stokkhólm eru frá árinu 1252, en í þeim er staðurinn nefndur sem mikilvæg miðstöð í verslun með járn og járnmálma.

Sagt er að Birger Jarl hafi stofnað Stokkhólm til að vernda þáverandi aðalbæ svíaveldis, Sigtuna og svæðið kringum Leginn (sæ. Mälaren) frá innrásum og sjórræningjum. Undir stjórn Magnúsar Ladulås dafnaði bærinn og varð mikilvæg verslunamiðstöð í samvinnu við hansakaupmenn. Um 1270 er Stokkhólmur nefndur í heimildum sem borg og mikilvægasti bær Svía.

Stokkhólmur verð mikilvægur hlekkur í samskiptum hinna dönsku konunga Kalmarsambandsins og Svía á 15. öld. Steinn Sture tókst með dyggum stuðningi íbúa Stokkhólms að vinna mikinn sigur á Kristjáni I, danakonungi, 14. október 1471. Sonarsonurinn, Kristján II hertók borgina 1518 og hélt henni fram til 1520. 8. nóvember 1520 stóðu hermenn danakonungs að miklu blóðbaði á öllum helstu andstæðingum Dana, en það hefur verið nefnt Stokkhólmsvígin. Þetta blóðbað hafði þó algjörlega andstæð áhrif við það sem Danir höfðu búist við, víða bar til vopnaðra átaka og leiddi það til upplausnar Kalmarsambandsins.

Áhrif og vald Stokkhólms jókst þegar Gústaf Vasa varð konungur Svíþjóðar árið 1523. Um aldamótin 1600 var íbúafjöldi kominn upp í tíu þúsund. Á 17. öld varð Svíþjóð eitt af stórveldum Evrópu og það hafði mikil áhrif á þróun Stokkhólms. Miklar hallarbyggingar eru frá þessum tíma.

Svartidauði (1713–1714 og Norðurlandaófriðurinn mikli, (1721, höfðu í för með sér tímabundna stöðnun. Þó hélt Stokkhólmur áfram að vera mikilvæg menningarborg ekki síst undir stjórn Gústaf III sem meðal annars lét bygga fyrstu óperuna.

Á fyrri hluta 19. aldar dróst enn saman efnahagslegt vægi Stokkhólms. Norrköping varð aðal verksmiðjuborg Svíþjóðar og Gautaborg varð megin hafnarborg landsins. Á seinni hluta aldarinnar snérust leikar að nokkru og Stokkhólmur varð aftur mikilvæg iðnaðar- verslunar- og stjórnsýsluborg. Íbúafjöldi jókst gífurlega, í lok 19. aldar var ekki einu sinni 40 % af íbúunum fæddir í borginni.

Stokkhólmur varð á seinni hluta 20. aldar mjög nútímaleg borg, framarlega í flokki í tækni og mjög fjölþjóðleg. Seinni hluti aldarinnar einkenndist einnnig af því að flest stærri iðnfyrirtæki lögðust niður eða fluttu erlendis en í stað þeirra hafa tekið við hátækniiðnaður og þjónustugreinar.

Landlýsing

Kort frá upphafi 19. aldar sem sýnir hvernig Stokkhólmur hefur byggst á fjölmörgum eyjum

Miðhluti borgarinnar er byggður á fjórtán eyjum og ströndum skerjagarðarins þar sem vattnasvæði Mälaren mætir Eystrarsaltinu. 53 brýr tengja eyjarnar.

Veðurfar

Veðurfar í Stokkhólmi einkennist af fjórum mjög ólíkum árstíðum. Frá lokum júní fram í ágúst er Stokkhólmur einn af heitustu stöðum Evrópu með meðalhita að degi til frá 20–23 °C og 11–13 °C að næturlagi. Ársúrkoma er um 539 mm og að meðaltali er mælist úrkoma 173 daga á ári og eru 16 þeirra snjódagar. Stokkhólmur hefur um 1.800 sólartíma á ári. Mesti hiti sem mælst hefur er 36 °C árið 1811, og sá lægsti -32 °C árið 1814. Reglulegar veðurathuganir hófust í Stokkhólmi 1756.

Veðuryfirlit [1]

Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember
 Hæsti meðalhiti −1 −1 3 9 16 21 22 20 15 10 5 1
 Lægsti meðalhiti −5 −5 −3 1 6 11 13 13 9 5 1 −3
 Úrkoma 39 27 26 30 30 45 72 66 55 50 53 46
 Línurit hitastig í °C • mánuðarúrkoma í mm
 
 
39
 
-1
-5


 
 
27
 
-1
-5


 
 
26
 
3
-3


 
 
30
 
9
1


 
 
30
 
16
6


 
 
45
 
21
11


 
 
72
 
22
13


 
 
66
 
20
13


 
 
55
 
15
9


 
 
50
 
10
5


 
 
53
 
5
1


 
 
46
 
1
-3


Taflan byggir á mælingum á tímabilinu 1961-1990. Mælingar 1991-2008 sýna að hitasig hefur hækkað um eina gráðu miðað við fyrri mælingar [2]

Neðanmálsgreinar

Tenglar