Sigurður E. Jónsson
- Sjá aðgreiningarsíðu fyrir aðra einstaklinga sem heita Sigurður Jónsson.
Sigurður E. Jónsson (24. september 1921 – 17. nóvember 1966) var íslenskur knattspyrnumaður, verkstjóri hjá Reykjavíkurborg forstjóri og formaður Knattspyrnufélagsins Fram.
Ævi og störf[breyta | breyta frumkóða]
Sigurður var verkstjóri hjá Pípugerð Reykjavíkur þegar hann lést langt fyrir aldur fram, 45 ára að aldri. Hann var þá kunnur fyrir störf sín að íþróttamálum.
Sigurður var lék í mörg ár með meistaraflokki Fram í knattspyrnu og varð Íslandsmeistari árið 1939. Hann þótti harðsnúinn varnarmaður, en var einnig vítaskytta í Íslandsmeistaraliðinu. Á þeim tíma var það óþekkt að varnarmenn væru látnir taka vítaspyrnur.
Utan vallar stjórnaði Sigurður lengi knattspyrnunefnd Fram og var formaður félagsins á árunum 1961-64. Á þeim tíma reyndi félagið árangurslaust að þrýsta á um að Reykjavíkurborg stæði við loforð sitt um nýtt félagssvæði í Kringlumýri.
Fyrirrennari: Jón Magnússon |
|
Eftirmaður: Jón Þorláksson |