[go: nahoru, domu]

Fara í innihald

Spjall:Stuttskífa

Innihald síðu er ekki stutt á öðrum tungumálum.
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Það er mótsögn í greininni vegna þess að það segir að stuttskífa kallist einnig smáskífa en sé of stutt til að vera smáskífa. Kannski ætti að útskýra þetta betur. Er ekki málið bara það að það er oft ekki gerður greinarmunur á stuttskífu og smáskífu (oft bara talað um 12"). Annars vaknar spurningin hvaða aðrar tegundir eru ekki sjaldséðar. Það eru til 10" vínylplötur en þær eru einmitt sjaldséðar, en raunar eru 7" plötur það líka, þótt þær hafi einu sinni verið algengari. --Cessator 23:59, 28 ágúst 2006 (UTC)

Haha nei þetta eru bara mín fljótfærnismistök. Ég sá að sagt væri að þetta héti einnig EP-plata, og ég hef alltaf skilið það svo að EP-plata sé smáskífa, svo án þess að lesa greinina nema á einhverjum spretti bætti ég því nafni inn. Tek það bara út aftur. Afsakið þessa fljótfærni! --Sterio 00:03, 29 ágúst 2006 (UTC)

Ertu viss um að 33 snúninga 12 tommu plötur séu algengar EP plötur, þær eru oftast kallarðar LP og eru algengar breiðskífur og lang algengusu vínylplöturnar en ég er ekki viss að EP plötur séu oft þannig? Orri 14:58, 29 ágúst 2006 (UTC)

Já ég er viss. Ég á sjálfur mörg hundruð slíkar plötur. Í dag er það reyndar svo að eiginlegar breiðskífur á vínyl eru í miklum minnihluta vegna þess að „LP“ plötur á vínyl eru venjulega tvöfaldar eða þrefaldar EP plötur. Svona hefur þetta meira og minna verið síðan geisladiskar komu á markaðinn og vínylplötuútgáfa minnkaði, sem sagt frá upphafi 10. áratugarins. --Cessator 17:53, 29 ágúst 2006 (UTC)
Má ekki einnig kallað þetta stuttplata? --Stefán Örvarr Sigmundsson 07:25, 17 ágúst 2007 (UTC)
Mér finnst stuttskífa fallegra orð. --Cessator 08:30, 17 ágúst 2007 (UTC)

Stuttplata eða stuttskífa er út í hött. Plötur eru ekki stuttar eða langar, það er innihaldið sem er stutt lag eða langt lag. Lítil plata (nefnd smáskífa) er 45. snúninga og inniheldur yfirleitt tvö lög. En lögin geta verið fjögur eða sex og þá er hún nefnd EP - plata (Extended Play). Þvermál lítillar plötu er 7 tommur. - Takk fyrir Kristján Frímann Kristjánsson 1. nóvember 2007 kl. 15:18 (UTC)[svara]

Lítil plata getur líka verið 10 tommur. Og 12 tommu plata (venjuleg stærð) getur líka verið svokölluð smáskífa með tvö lög og getur vel verið 45 snúninga ekki síður en 33⅓ snúninga. En taktu eftir að fyrst þetta er svona, þá er orðið „smáskífa“ líka út í hött af því að smáskífa getur verið jafn stór og venjuleg LP plata (eða EP plata). Tungumálið er bara ekki alltaf röklegt (kannski bara sjaldnast) og stundum verður maður bara að skilja ákveðnar tengingar; eins og t.d. að stuttskífa sé nefnd svo af því að spilunartíminn er stuttur. Orðið „stuttskífa“ er þess vegna alls ekki út í hött að mínu mati, þvert á móti, ágætis orð. --Cessator 1. nóvember 2007 kl. 15:42 (UTC)[svara]