Robert F. Kennedy Jr.
Útlit
Robert F. Kennedy Jr. einnig þekktur sem RFK Jr. (f. 17. janúar 1954) er bandarískur stjórnmálamaður, lögfræðingur, bólusetningarandstæðingur og samsæriskenningarmaður. Faðir hans var stjórnmálamaðurinn Robert F. Kennedy og föðurbróðir hans var John F. Kennedy, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna.
Í apríl 2023 tilkynnti Kennedy að hann sóttist eftir tilnefningu Demókrataflokksins í forsetakosningunum 2024. Í október 2023 tilkynnti Kennedy að hann myndi frekar bjóða sig sem sjálfstæður frambjóðandi. Lögfræðingurinn Nicole Shanahan var varaforestaefni hans.