Hófsóley
Caltha palustris | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Caltha palustris L. |
Hófsóley eða lækjasóley (fræðiheiti: Caltha palustris eða Trollius paluster) er fjölær jurt með hóflaga blöðkum og gulum blómum sem vex á norðurhveli jarðar. Engin bikarblöð eru á blómum. Nokkrar frævur verða að belghýðum sem hver hefur nokkur fræ. Hún vex í rökum jarðvegi og myndar þéttar þúfur. Hófsóley inniheldur eiturefni svo dýr forðast að éta hana. Hún vex víða í görðum og er þá jafnan álitin illgresi. Önnur nöfn hennar eru hófgresi, hófblaðka, dýjasóley, lækjasóley og kúablóm.
Útbreiðsla á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Hófsóley er algeng á láglendi á Íslandi og vex í mýrum, vatnsfarvegum, keldum og meðfram lygnum lækjum. Hófsóley finnst stundum í 300 til 400 metra hæð inni á heiðum og vex jafnvel enn hærra þar sem jarðhiti er eins til dæmis í 600 metra hæð á Hveravöllum og í Landmannalaugum.
Notagildi
[breyta | breyta frumkóða]Blóm hófsóleyjar eru æt og þau er einnig hægt að nota til að lita klæði. Hún er notuð í grasalækningum, m.a. til að losa slím, lina verki og lina krampa.
Til forna töldu sumir að rétti tíminn til að hefja heyskap væri þegar hófsóley felldi blöðin.
Ítarefni
[breyta | breyta frumkóða]- Hófsóley Geymt 8 júní 2020 í Wayback Machine á veg Náttúrufræðistofnunar Íslands